Fréttir

Blak spilað í Fjallabyggð um helgina

Alls voru 136 blakleikir spilaðir í Fjallabyggð um helgina þegar Sigló Hótel - Benecta mótið 2017 var haldið. Samtals spiluðu 53 lið 136 blakleiki en mótinu lauk síðdegis í gær laugardag með verðlaunaafhendingu í Bátahúsinu.
Lesa meira

Frábær árangur Fjallabyggðar - Allir lesa

Úrslitin í Allir lesa 2017 ljós. Þátttakendur lásu í samtals 43.567 klukkustundir, eða sem samsvarar um fimm árum! Liðakeppnin var æsispennandi að vanda og hafa fjölbreytt lið víðsvegar að af landinu raðað sér í efstu sætin. Í Fjallabyggð var meðallestur á þátttakenda heilar 49,4 klukkustundir, eða sem nemur rúmum tveimur sólarhringum á mann. Varð þessi frábæri árangur til þess að Fjallabyggð hafnaði í 2. sæti á eftir Strandabyggð.
Lesa meira

Uppbygging nýrra áfangastaða - sóknarfæri í ferðaþjónustu

Ráðstefna um ferðaþjónustu Fjallabyggðar, fimmtudaginn 9. mars í Tjarnarborg Ólafsfirði Ráðstefnan hefst klukkan 11:30 og stendur til 15:10
Lesa meira

Spinning - spinning

• Spinning í Íþróttamiðstöðinni í Ólafsfirði á mánudögum 06:30 og miðvikudögum kl. 17.00 og á auglýstum tíma á laugardögum kl. 10:00 • Spinning í Íþróttamiðstöðinni á Siglufirði á þriðjudögum kl. 17:00 og föstudögum kl. 12:15 Panta þarf hjól fyrir hvern tíma með því að hringja í síma 464-9250 á Ólafsfirði og í síma 464-9170 á Siglufirði. Athugið að ný gjaldskrá hefur tekið gildi. Stakur tími er á 1.350 kr. og 10 miða kort á 10.000 kr. Kennari er Harpa Hlín Jónsdóttir.
Lesa meira

Eyrarrósin 2017 afhent

Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík hafa undirritað samkomulag um Eyrarrósina til næstu 4 ára.
Lesa meira

Hvenær er besti tími dagsins til þess að ala upp barn?

Fundur fyrir foreldra/forráðamenn í Fjallabyggð þann 22. febrúar kl. 19.30 í Tjarnarborg, Ólafsfirði.
Lesa meira

Fræðslustefna Fjallabyggðar - til kynningar

Fræðslustefna Fjallabyggðar Kraftur – Sköpun – Lífsgleði Formáli Í febrúar 2016 var ákveðið af fræðslu- og frístundanefnd að setja á laggirnar vinnuhóp til að koma að endurskoðun á Fræðslustefnu Fjallabyggðar sem samþykkt var af þáverandi bæjarstjórn árið 2009. Í vinnuhópnum hafa verið; Jónína Magnúsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar, Olga Gísladóttir skólastjóri Leikskóla Fjallabyggðar, Magnús Ólafsson skólastjóri Tónlistarskólans á Tröllaskaga, Lára Stefánsdóttir skólameistari Menntaskólans á Tröllaskaga, Kristín Brynhildur Davíðsdóttir kennari við Grunnskóla Fjallabyggðar, Vibekka Arnardóttir leikskólakennari og Sæbjörg Ágústsdóttir formaður fræðslu- og frístundanefndar. Starfsmaður vinnuhópsins var Kristinn J. Reimarsson deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála. Vinnuhópurinn hefur haldið fundi auk þess sem samvinna hefur farið fram á netinu. Haft var opið samráð við íbúa í gegnum samfélagsmiðilinn Facebook þar sem settar voru fram spurningar og vangaveltur um skólamál í Fjallabyggð. Síðan var með mikinn lestur og athugasemdir við innleggin.
Lesa meira

Kynning á drögum af tillögu að deiliskipulagi miðbæjar Siglufjarðar

Í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með boðað til kynningarfundar sem haldinn verður í bæjarstjórnarsal Ráðhúss Fjallabyggðar fimmtudaginn 16. febrúar kl. 17:00. Á fundinum munu hönnuðir kynna drögin og svara fyrirspurnum. Í kjölfar kynningarfundarins verður tillaga lögð fyrir sveitarstjórn til samþykktar fyrir formlega auglýsingu ásamt athugasemdafresti. Íbúar eru hvattir til að mæta. Deildarstjóri tæknideildar
Lesa meira

Alþýðuhúsið valið á Eyrarrósarlistann 2017

Sex ólík menn­ing­ar­verk­efni á lands­byggðinni hafa verið val­in á Eyr­ar­rós­arlist­ann 2017 og eiga þar með mögu­leika á að hljóta Eyr­ar­rós­ina í ár og er Alþýðuhúsið á Sigluf­irði undir stjórn Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur eitt af þeim. Alls bár­ust 37 um­sókn­ir um Eyr­ar­rós­ina, hvaðanæva af land­inu..
Lesa meira

Dagur leikskólans

Í dag 6. febrúar var dagur leikskólans. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.
Lesa meira