Siglufjörður fulltrúi Íslands til Emblu-verðlaunanna

Embla - matarverðlaun Norðurlandanna
Embla - matarverðlaun Norðurlandanna

Í dag 12. maí var tilkynnt um þá aðila sem tilnefndir eru til Embluverðlaunanna en verðlaunin eru samnorræn matarverðlaun. Sigufjörður er þar á meðal í flokknum "Mataráfangastaður Norðurlandanna 2017".

Alls er "keppt" í sjö flokkum sem útlistaðir eru á vefnum.

Verðlaunin verða veitt í Kaupmannahöfn 24. ágúst n.k., á sama tíma og ein stærsta matarhátíð Norðurlandanna fer fram þar í borg, Copenhagen Cooking & Food Festival. 

Embla er heitið á norrænum matarverðlaunum sem öll bændasamtök á Norðurlöndunum standa að í samvinnu við norrænu ráðherranefndina. Verðlaununum er ætlað að hampa því sem skarar fram úr í hinu norræna eldhúsi: hráefni, matvælum, framleiðsluaðferðum og fólkinu á bak við allt saman. Markmiðið með Embluverðlaununum er að deila þekkingu og reynslu og vekja athygli á norrænum mat.

Alls eru sjö verðlaunaflokkar en þeir eru ásamt tilnefndum fulltrúum frá Íslandi:

Mataráfangastaður 
Siglufjörður. Gamli síldarbærinn byggir á sögu og tengir hana við vandaða afþreyingu, fjölbreyttan matvælaiðnað og frábæra matsölustaði. Vefsíða: www.visittrollaskagi.is og www.sild.is 

Hráefnisframleiðandi
Friðheimar. Tómataframleiðsla, veitingastaður og ferðaþjónusta. Vefsíða: www.fridheimar.is

Matur fyrir marga
Eldum rétt. Heimsending á uppskriftum og hráefni til eldunar. Áhersla á minni matarsóun og heilbrigðara líferni. Vefsíða: www.eldumrett.is

Matur fyrir börn og ungmenni
Vakandi. Rakel Garðarsdóttir og Hrefna Rós Sætran fyrir barnamat sem unninn er úr íslenskum hráefnum. Vefsíða: www.vakandi.is

Matarfrumkvöðull
Pure Natura ehf. Framleiðsla á bætiefnum úr íslenskum hráefnum; innmat og villtum jurtum. Vefsíða: www.purenatura.is

Matvælaiðnaðarmaður
Saltverk. Saltframleiðsla á Reykjanesi á Vestfjörðum sem nýtir jarðhita og fornar vinnsluaðferðir. Vefsíða: www.saltverk.is

Kynningarherferð / Matarblaðamennska
Icelandic Lamb. Markaðsfærsla og vörumerkjaþróun á afurðum íslensku sauðkindarinnar. Vefsíða: www.icelandiclamb.is

Í dómnefndinni sitja þau Guðrún Tryggvadóttir, bóndi í Svartárkoti, Bjarni Gunnar Kristinsson, matreiðslumeistari í Hörpu og Brynja Laxdal, verkefnastjóri hjá Matarauði Íslands.

Allar upplýsingar er að finna á vefsíðunni www.emblafoodaward.com