Mokstur hefst á forgangi 1 eða rauðum götum. Í forgangi 1 felst að gera fært um helstu leiðir í þéttbýliskjörnunum. Stefnt skal að því að fært sé eftir rauðum götum kl. 8:00 á virkum dögum, þannig að fært sé að skólum leikskólum, slökkviliðsstöðvum, heilbrigðisstofnunum, niður að höfn, og ákveðinn öryggishring sem nýtist flestum bæjarbúum.
Götur í forgangi 2, grænar götur, eru næstar í röðinni og að lokum verða götur í forgangi 3, gular götur, mokaðar.
Verklok á þessum tveimur verkþáttum er óviss og hafa bæjarverkstjórar frjálsræði í hvaða röð göturnar eru mokaðar.
Göngustígar og plön, blálituð á korti, eru mokuð samkvæmt ákvörðun bæjarverkstjóra og skal hann hafa að leiðarljósi þörfina á mokstri á viðkomandi stöðum.
Samhliða snjómokstri eru almenningsbílastæði í miðbænum mokuð enda gerð þeirra kostuð af sveitarfélaginu.
Plön og heimkeyrslur við íbúðarhús og fyrirtæki eru ekki mokuð á kostnað sveitarfélagsins.
Mokstur vegna öryrkja er við sérstakar aðstæður framkvæmdur samkvæmt beiðni félagsþjónustunnar