Á kortavef Fjallabyggðar er nú hægt að sjá þær lóðir sem lausar eru til umsóknar. Á kortavefnum er einnig hægt að fá upplýsingar um stærð lóða og hámarks byggingarmagn samkvæmt deiliskipulagi. Umsóknir lóða fara í gegnum Rafræn Fjallabyggð - íbúagátt þar sem umsækjandi skráir sig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Tæknideild Fjallabyggðar veitir einnig frekari upplýsingar um lausar lóðir, í Fjallabyggð, í síma 464-9111 eða með tölvupósti á fjallabyggd@fjallabyggd.is.
Lausar lóðir á kortavef Fjallabyggðar
Ívilnanir
Á 786. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar var samþykkt með vísan til heimildar í a-lið 8. gr. samþykktar um gatnagerðargjöld og sölu byggingaréttar í Fjallabyggð frá 4. júlí 2018 að fella tímabundið niður öll gatnagerðargjöld í Fjallabyggð.
Tekur ákvörðunin þegar gildi og gildir til 31.12.2024.
Umsóknir, reglur um úthlutanir og gjaldskrár: