19.05.2017
Frystitogarinn Sólberg ÓF-1 kom til Siglufjarðar í morgun 19. maí.
Fjallabyggð óskar Ramma hf. og sjómönnum innilega til hamingju með þetta stórglæsilega skip.
Lesa meira
19.05.2017
Skemmtiferðaskipið Ocean Diamond kom til Siglufjarðar í morgun og er það fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins. Skipið er á 10 daga siglingu um landið og stoppar á 9 stöðum. Um borð voru 190 farþegar. Stoppaði skipið frá kl. 8:00-13:00 og var Síldarminjasafnið meðal annars heimsótt. Alls er von á 35 skipakomum til Siglufjarðar í sumar sem er veruleg fjölgun frá síðasta ári.
Næsta skemmtiferðaskip sem leggur við bryggju er Spitsbergen en það er væntanlegt 26. maí nk. með 335 farþega.
Lesa meira
18.05.2017
Svör til Foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar vegna breytinga á skólastarfi Grunnskóla Fjallabyggðar.
Lesa meira
18.05.2017
Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum í dag þann 18. maí 2017 eftirfarandi tillögu starfsfólks um samþættingu á skóla- og frístundastarfi.
Lesa meira
18.05.2017
Kaldavatnslaust verður í norðurbæ Siglufjarðar í dag fimmtudaginn 18. maí frá kl. 15:00 - 17:00, vegna viðgerða.
Lesa meira
17.05.2017
Neðangreint erindi var tekið fyrir á 501. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar þann 16. maí 2017.
Lesa meira
17.05.2017
Framkvæmdir eru að hefjast á endurnýjun Túngötu, milli Aðalgötu og Eyrargötu. Hjáleið verður um Þormóðsgötu og Lækjargötu á meðan á framkvæmdunum stendur. Einnig verður hægt að komast að bílastæðum á móti Vínbúðinni og til móts við Arionbanka og Ljóðasetrið. Sjá meðfylgjandi kort.
Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem kunna að verða við framkvæmdina.
Lesa meira
17.05.2017
Frystitogarinn Sólberg ÓF-1 bætist í skipaflotann á laugardag, er Rammi hf. tekur formlega á móti skipinu á Siglufirði.
Af því tilefni býður Rammi hf. til móttöku sem haldin verður laugardaginn 20. maí nk. á Siglufirði.
Lesa meira
16.05.2017
Bæjarstjórn Fjallabyggðar
Aukafundur
147. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar
Lesa meira
15.05.2017
146. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Menningarhúsinu Tjarnarborg Ólafsfirði 17. maí 2017 kl. 17.00
Lesa meira