Fréttatilkynning vegna ársreiknings Fjallabyggðar 2016

Rekstrarniðurstaða jákvæð um 199 mkr.

Ársreikningur Fjallabyggðar var lagður fram til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 21. apríl 2017. Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:

1. Rekstrarniðurstaða Bæjarsjóðs Fjallabyggðar (A+B hluti) var jákvæð um 199 mkr. fyrir árið 2016, en var jákvæð um 220 mkr. árið 2015.

2. Rekstrartekjur A og B hluta námu 2.319 mkr. á árinu 2016, en voru 2.279 fyrir árið 2015.

3. Rekstrargjöld ársins 2016 námu 2.108 mkr. en voru 2.034 mkr. fyrir árið 2015. Mestu munar um hækkun launakostnaðar á milli ára um 96 mkr. Annar rekstrarkostnaður lækkar hins vegar um 28 mkr. á milli ára.

4. Veltufé frá rekstri nam 445 mkr. eða 19.2% miðað við 404 mkr. árið 2015 (17.7%)

5. Vaxtaberandi langtímaskuldir lækkuðu um 110 mkr. á milli ára. Brúarlán vegna hafnarframkvæmda nam 145 mkr. um áramót, en var greitt upp snemma á árinu 2017.
Skuldaviðmið er 62.1%, en var 56.3% árið 2015. Skýring á þessari hækkun er mikil hækkun á lífeyrisskuldbindingum og brúarlán vegna hafnarframkvæmda. Viðmið samkvæmt sveitastjórnalögum er 150%.

6. Eigið fé Bæjarsjóðs Fjallabyggðar er 2.643 mkr. eða 58.2%, en var 2.376 eða 57.7% árið 2015.

7. Ef veltufé frá rekstri væri eingöngu notað til greiðslu langtímaskulda tæki það 1 ár, miðað við 1.49 ár 2015.

8. Fjárfestingar á árinu 2016 voru 495 mkr. Helstu framkvæmdir voru viðbygging við Menntaskólann á Tröllaskaga, ný líkamsrækt í Ólafsfirði , endurnýjun Bæjarbryggju, yfirlögn malbiks á götur, nýtt tjaldsvæði á Siglufirði, fráveitulagnir í báðum byggðakjörnum og stækkun leikskóla á Siglufirði.

Ársreikningurinn sýnir að fjárhagsstaða Bæjarsjóðs er sterk og rekstur sveitarfélagsins í góðu lagi.

 

Gunnar Ingi Birgisson
bæjarstjóri