Gústav Geir Bollason sýning í Kompunni

«Speed-ups» eru lúnir skúlptúrar.
«Speed-ups» eru lúnir skúlptúrar.

Laugardaginn 6. maí kl. 15.00 - 17.00 opnar Gústav Geir Bollason sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

Gústav Geir Bollason Býr og starfar á Hjalteyri við Eyjafjörð, þar sem að hann hefur jafnframt umsjón með listamiðstöð í gömlu síldarverksmiðjunni. Hann lærði myndlist við MHÍ Reykjavík, Magyar Képzőművészeti Egyetem Budapest 89-90 og við ENSAPC Paris/Cergy. Hann hefur sýnt á Íslandi, í Evrópu og í Ameríku bæði í myndlistarrýmum og á kvikmyndahátíðum. Kvikmyndin Carcasse sem að var frumsýnd í Rotterdam í janúar 2017 verður sýnd á Kinodot Experimental Film Festival í Saint Petersburg 20-21 maí næstkomandi.

Verk Gústavs Geirs Bollasonar taka helst á sig form teikninga, umsköpunar á fundnum hlutum, og kvikmynda. Krókleiðis stefnir hann saman aðferðum og viðfangsefnum svo að úr verður skáldskapur – útfærsla á raunveruleikanum. Til þess að prófa skynjunina á umhverfinu og gefnum hugmyndum um það.

Myndatexti:

«Speed-ups» eru lúnir skúlptúrar. Mekanismi eða nokkurskonar stundaglös sem að hafa virkni en þarfnast afskipta áhorfenda.