Fréttir

Samstarf Grunnskóla Fjallabyggðar og MTR hefur gengið vel og er í sókn

Samstarf Grunnskóla Fjallabyggðar og Menntaskólans á Tröllaskaga hefur tekið stakkaskiptum eftir að unglingadeildin flutti til Ólafsfjarðar.
Lesa meira

Hreyfing fyrir fólk á besta aldri

Hreyfing fyrir fólk á besta aldri var yfirskrift fræðsluerindis Sveins Torfasonar sjúkraþjálfara í Húsi eldri borgara síðastliðinn miðvikudag. Í erindinu fjallaði Sveinn meðal annars um mikilvægi hreyfingar, hjálpartæki og verki.
Lesa meira

Breyting á Svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012-2024

Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar vinnur nú að breytingu á Svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012-2024, sem staðfest var 21.1.2014. Breytingin mun taka til legu flutningslína raforku en ekki voru forsendur til þess að ganga frá legu þeirra þegar svæðisskipulagið var unnið. Í samræmi við 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 hefur verið tekin saman skipulags- og matslýsing þar sem gerð er grein fyrir áherslum, helstu forsendum, fyrirliggjandi stefnu, skipulagskostum og hvernig samráði og kynningu verður háttað. Lýsing er sett fram og kynnt í upphafi verks til þess að almenningur, umsagnaraðilar og hagsmunaaðilar fái upplýsingar um fyrirhugaða skipulagsvinnu og geti sett fram sjónarmið, athugasemdir og ábendingar sem að gagni gætu komið við gerð skipulagsins.
Lesa meira

Kraftmikið starf í Leikskóla Fjallabyggðar í vetur

Í vetur hafa gildi og leiðarljós fræðslustefnunnar endurspeglast með markvissum hætti í starfi Leikskóla Fjallabyggðar. Leiðarljós fræðslustefnunnar er Kraftur – Sköpun - Lífsgleði
Lesa meira

Félagsmiðstöðin gerir góðverk í Fjallabyggð

Unglingar í félagsmiðstöðinni Neon hafa undanfarin ár safnað fyrir ferð á Samfestinginn í Laugardalshöll með óskum um styrki bæði frá fyrirtækjum og einstaklingum. Í ár er engin breyting þar á en þó ætla unglingarnir að bjóða upp á þá nýbreytni að hafa góðgerðarviku.
Lesa meira

Ytra mat Leikskóla Fjallabyggðar

Í september 2017 var framkvæmt svokallað ytra mat á Leikskóla Fjallabyggðar. Fjallbyggð hefur nú fengið matsskýrslu senda frá Menntamálastofnun. Í skýrslunni er gerð grein fyrir niðurstöðum úr ytra mati á Leikskóla Fjallabyggðar. Í matsskýrslu er fjallað um ytra mat á leikskólanum. Matið er gert á grundvelli 17. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008.
Lesa meira

Vorhátíð Grunnskóla Fjallabyggðar

Miðvikudaginn 21. mars kl. 17 verður vorhátíð 1.-7. bekkjar haldin í Tjarnarborg í Ólafsfirði
Lesa meira

Íbúafundur um skipulag sjúkraflutninga í Fjallabyggð 7. mars

Heilbrigðisstofnun Norðurlands verður með opinn fund um skipulag sjúkraflutninga í Fjallabyggð miðvikudaginn 7. mars kl. 19.30 í menningarhúsinu Tjarnarborg á Ólafsfirði. Allir velkomnir, Framkvæmdastjórn HSN
Lesa meira

Þriðja áfangaskýrsla Norðurstrandarleiðar komin út

Nú er þriðja áfangaskýrslan um Arctic Coast Way - Norðurstrandarleið komin út. Í skýrslunni er fjallað um þróun á upplifunum, en sú vinna er unnin í samstarfi við breska ráðgjafafyrirtækið Blue Sail.
Lesa meira

Álagning fasteignagjalda í Fjallabyggð 2018

Álagningu fasteignagjalda 2018 hefur nú verið lokið. Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2018 hafa verið sendir út, einnig eru þeir aðgengilegir í gegnum mín Fjallabyggð, íbúagáttina á heimasíðu Fjallabyggðar.
Lesa meira