Hjólað í vinnuna

Af vef Hjólað í vinnuna
Af vef Hjólað í vinnuna

Dagana 2. - 22. maí nk. stendur yfir heilsu- og hvatningarverkefnið "Hjólað í vinnuna" en það er almenningsíþróttasviðs Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, ÍSÍ. sem hvetur vinnustaði til að taka þátt í þessari skemmtilegu vinnustaðakeppni um allt land.

Opnað verður fyrir skráningar þann 18. apríl nk., og því er ekki seinna vænna fyrir liðstjóra og aðra að fara að ræða saman innan vinnustaðarins og undirbúa liðsskráninguna.

Ýmislegt gagnlegt varðandi innskráningar og skráningarblöð má finna inni á heimasíðu Hjólað í vinnuna.

Meginmarkmið ,,Hjólað í vinnuna” er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. 

Allir sem nýta eigin orku til að ferðast til og frá vinnu eru gjaldgengir þátttakendur þ.e. hjóla, ganga, hlaupa, nota línuskaut/hjólabretti o.s.frv. Þeir sem nota almenningssamgöngur geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem gengin/hjóluð er til og frá stoppistöð.

Eru vinnustaðir hvattir til þess að skrá sig til leiks og finna öfluga einstaklinga til þess að kynna sér skráninguna og fyrirkomulag keppninnar.

Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu verkefnisins.