Fréttir

Tafir á opnun sundlaugar í Ólafsfirði

Vegna ófyrirséðra tafa við afhendingu efnis við endurnýjun búningsklefa í sundlaug Fjallabyggðar Ólafsfirði verður sundlaugin ekki opnuð í byrjun júní eins og ráðgert hafði verið. Stefnt er að opnun laugarinnar eins fljótt og auðið er, í síðasta lagi 20. júní. Kappkostað er að opna sundlaugina fyrr ef möguleiki er á og verður það þá auglýst sérstaklega. Sumaropnun sundlaugar Fjallabyggðar á Siglufirði hefst 7. júní. Opið verður alla virka daga kl. 06:30 – 19:00 og laugardaga og sunnudaga kl. 10:00 – 18:00.
Lesa meira

216. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar

216. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði 2. júní 2022 kl. 17.30.
Lesa meira

Snjóflóðavarnir Siglufirði - Stoðvirki í Hafnarfjalli 4. áfangi

Framkvæmdir eru hafnar við uppsetningu stoðvirkja grinda í Hafnarfjalli. Flug í fjallið mun hefjast í dag og standa fram á helgi. Ekki er flogið með grindur yfir byggðina, en óþægindi geta verið af hávaða vegna flugsins.
Lesa meira

215. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar

215. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Tjarnarborg, Aðalgötu 16, Ólafsfirði 25. maí 2022 kl. 17.00
Lesa meira

Íþróttamiðstöðvarnar verða lokaðar þriðjudaginn 24. maí frá kl. 12:00

Íþróttamiðstöðvarnar verða lokaðar þriðjudaginn 24. maí frá kl. 12:00 vegna námskeiðis stafsfólks.
Lesa meira

Tilboð óskast í endurnýjun á yfirfallslögn Álalækjar á Siglufirði

Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í endurnýjun á yfirfallslögn Álalækjar á Siglufirði. Rjúfa þarf núverandi yfirborðsfrágang og grafa fyrir og leggja nýja yfirfallslögn frá dælubrunni við efri enda Gránugötu að smábátahöfn. Nýja lögnin tengist við núverandi lagnakerfi norðan dælubrunns og kemur í stað núverandi Álalækjarræsis sem leggst af.
Lesa meira

Sjómannadagurinn í Ólafsfirði 2022

Dagskrá um sjómannadagshelgina í Ólafsfirði hefur nú litið dagsins ljós og má segja að hún sé hin glæsilegasta. Það er Sjómannadagsráð Sjómannafélags Ólafsfjarðar sem hefur haft veg og vanda að gerð dagskrárinnar sem höfðar til fólks á öllum aldri.
Lesa meira

Opnun tjaldsvæða í Fjallabyggð sumarið 2022

Tjaldsvæðið á Siglufirði hefur verið opnað fyrir gesti. Tjaldsvæðið á Stóra Bola Siglufirði mun væntanlega opna í kringum mánaðamótin maí - júní. Nýtt aðstöðuhús er nú í byggingu við Tjaldsvæðið í Ólafsfirði. Reiknað er með því að aðstaðan verið tilbúin fyrir 15. júní. Samhliða breytingunum uppfærist einnig aðstaðan á tjaldstæðinu við Stóra Bola.
Lesa meira

Pistill bæjarstjóra 17. maí 2022 – Kveðja og þakkir

Kæru íbúar Fjallabyggðar, Um leið og ég upplýsi ykkur íbúa Fjallabyggðar um að ég hyggist ekki sækjast eftir endurráðningu í starf bæjarstjóra að liðnum ráðningartíma mínum þá vil ég þakka innilega fyrir þau tvö viðburðaríku og annasömu ár sem ég hef fengið að njóta hér í Fjallabyggð.
Lesa meira

Frístundastarf barna og unglinga í Fjallabyggð sumarið 2022

Eins og síðustu ár mun Fjallabyggð birta rafrænt yfirlit/dagatal yfir afþreyingu og frístundastarf barna og unglinga í Fjallabyggð sumarið 2022. Þar með verða upplýsingar um það sem er í boði til afþreyingar og dægrastyttingar fyrir þann aldurshóp aðgengilegar á einum stað á heimasíðu Fjallabyggðar.
Lesa meira