Frístundastarf barna og unglinga í Fjallabyggð sumarið 2022

Frístundastarf barna og unglinga í Fjallabyggð sumarið 2022

Eins og síðustu ár mun Fjallabyggð birta rafrænt yfirlit/dagatal yfir afþreyingu og frístundastarf barna og unglinga í Fjallabyggð sumarið 2022.
Þar með verða upplýsingar um það sem er í boði til afþreyingar og dægrastyttingar fyrir þann aldurshóp aðgengilegar á einum stað á heimasíðu Fjallabyggðar.

Horft er til afþreyingar eða námskeiða á sviði menningar, lista, íþrótta o.s.frv. Hægt verður að bæta inn í yfirlitið eftir þann tíma en gott að hafa sem mest tilbúið við birtingu yfirlitsins.

Upplýsingar sem þurfa að koma fram:

  • Upplýsingar um aðila sem heldur námskeiðið/afþreyinguna
  • Heiti og nánari lýsing námskeiðs/afþreyingar
  • Tímasetning 
  • Staðsetning
  • Aldur þátttakenda
  • Þátttökukostnaður (t.d.æfingagjöld)

Ath! Ekki er átt við staka viðburði s.s. leiksýningar eða slíkt.

Þeir aðilar sem ráðgera að bjóða upp á afþreyingu eða aðra dagskrá fyrir börn og unglinga í sumar eru hvattir til að senda upplýsingar um það rafrænt á vef Fjallabyggðar (Slóð á eyðublað) fyrir 31. maí 2022, eða til Ríkeyjar Sigurbjörnsdóttur; rikey@fjallabyggd.is eða Lindu Leu Bogadóttur; lindalea@fjallabyggd.is, sem einnig veita frekari upplýsingar ef þörf krefur. 

Eyðublað fyrir skráningu   Auglýsing (pdf)