Fréttir

Strákarnir okkar úr MTR unnu Söngkeppni framhaldsskólanna

Tvíburabræðurnir Tryggvi Þor­valds­son og Júlí­us Þor­valds­son ásamt Herði Inga Kristjáns­syni og Mika­el Sig­urðssyni voru full­trú­ar Mennta­skól­ans á Trölla­skaga í söng­keppni fram­halds­skól­anna sem fram fór í beinni útsendingu á Rúv föstudagskvöldið 26. september sl.
Lesa meira

Framkvæmdum og endurbótum er lokið við skólalóðir Leikskóla Fjallabyggðar

Framkvæmdum og endurbótum er lokið við skólalóðir Leikskóla Fjallabyggðar í Ólafsfirði og á Siglufirði og eru þær hinar glæsilegustu.
Lesa meira

Barnamenningardagar í Fjallabyggð 24. – 27. október 2020

Barnamenningardagar Fjallabyggðar verða haldnir dagana 24. – 27. október 2020 þar sem í boði verða meðal annars sköpunarsmiðjur, listsmiðjur, skapandi námskeið, fræðsla, upplestur, ljóðlist, jóga, fjöllistir, framandi matargerð, sýningar og fleira fyrir börn og ungmenni. Markmiðið með Barnamenningardögum er að efla menningarstarf barna, gefa þeim tækifæri til að kynnast flóru menningar og lista í samfélaginu og sem þátttakendur að rækta hæfileika sína til listsköpunar, veita þeim hvatningu til skapandi hugsunar og kynna þeim heim og umhverfi menningar og lista.
Lesa meira

Félagsstarf aldraðra og dagdvöl eldri borgara Fjallabyggðar heldur áfram

Félagsstarf aldraðra og dagdvöl eldri borgara er formlega hafið og er dagskráin fjölbreytt að venju. Allir heldri borgarar Fjallabyggðar ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og notið félagsstarfsins í vetur.
Lesa meira

Opinn íbúafundur í ráðhúsi Fjallabyggðar 22. september

Opinn íbúafundur verður haldinn í ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði þann 22. september nk. kl.17:00. Fundarefni er að kynna tillögu að endurskoðun hættumats fyrir Siglufjörð og tillögu að næstu framkvæmdum við ofanflóðavarnir. Vegna regla um samkomutakmarkanir og 1 metra fjarlægðarregla er óskað eftir skráningu á fundinn á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is. Léttar veitingar í boði.
Lesa meira

Íþróttamiðstöðin í Ólafsfirði tilkynnir

Vegna viðgerða hjá Norðurorku verða vaðlaug, fosslaug og lendingarlaugar við rennibrautir ekki hitaðar frá þriðjudeginum 15. september til föstudagsins 18. september. Forstöðumaður.
Lesa meira

Vetraropnun Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar gildir frá 1. september 2020 - 31. maí 2021

Vetraropnun Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar gildir frá 1. september 2020 - 31. maí 2021
Lesa meira

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir styrkumsóknum - Opnað fyrir umsóknir 8. september

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur auglýst eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2021. Opnað verður fyrir umsóknir 8. september og er umsóknarfrestur til kl. 12 á hádegi 6. október. Framkvæmdasjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Lesa meira

Lokanir gatna á Siglufirði vegna malbikunar

Vegna malbikunar Hvanneyrarbrautar utan Túngötu á Siglufirði á morgun miðvikudag kl. 9:00 – 22:00 verða götur lokaðar fyrir umferð sem hér segir: • Hvanneyrarbraut verður lokuð frá Þormóðsgötu að Fossvegi en íbúar við Hvanneyrarbraut 22-36 geta keyrt að húsi sínu. • Túngata verður lokuð frá Þormóðsgötu en íbúar við Túngötu 25- 43 geta keyrt að húsi sínu • Hlíðarvegur verður lokaður við Hvanneyrarbraut. Íbúar við Hvanneyrarbraut þar sem malbikun fer fram eru beðnir um að færa bíla sína. Hjáleiðir verða merktar.
Lesa meira

Breyttur útivistartími frá 1. september

Vakin er athygli á því að útivist­ar­tími barna og ung­linga tók breyt­ing­um 1. sept­em­ber. 
Lesa meira