Lokun skrifstofu Fjallabyggðar

Ágætu íbúar, skrifstofa Fjallabyggðar verður lokuð frá og með mánudeginum 2. nóvember til og með 17. nóvember 2020.

Vinsamlegast hringið á opnunartíma í síma 464 9100 til að fá samband við starfsmenn Ráðhússins. Einnig er hægt að senda tölvupóst á fjallabyggd@fjallabyggd.is. Starfsfólk í afgreiðslu mun leiðbeina og leitast við að leysa úr þeim málum sem um er að ræða í hverju tilviki.

Með þessu er leitast við að lágmarka umgang um húsið, bæði gesta og starfsfólks. Tilhögun þessi gildir þar til annað hefur verið auglýst.

Íbúum er bent á að margvíslegar upplýsingar er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins, www.fjallabyggd.is, og að einnig er hægt að sækja um ýmsa þjónustu í gegnum íbúagátt sem er að finna á síðunni.

Framangreindar ráðstafanir eru í þeim tilgangi að draga eftir mætti úr smithættu og tryggja sem best að starfsemi og þjónusta haldist órofin. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar ráðstafanir kunna að fela í sér fyrir íbúa og aðra.

Við erum öll almannavarnir.

Elías Pétursson
Bæjarstjóri