Fréttir

194. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar

194. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði, 1. desember 2020 kl. 17.00
Lesa meira

Tendrun jólatrjáa í Fjallabyggð og jólamarkaður Tjarnarborgar

Hefðbundnum föstum viðburðum sem tengjast jólahátíðinni í Fjallabyggð líkt og tendrun jólaljósa jólatrjánna fyrstu helgina í aðventu og árlegum jólamarkaði í Tjarnarborg hefur verið aflýst vegna samkomutakmarkana. Yngri börn leik- og grunnskóla munu þó gera sér ferð að trjánum í desember og hengja á þau jólaskraut. Áramótabrennur og flugeldasýningar verða haldnar eins og venjulega sem og á þrettándanum.
Lesa meira

Ratsjáin - Viltu vera með?

Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðausturlandi (SSNE) í samvinnu við fleiri, bjóða nú fyrirtækjum á sínu starfssvæði að taka þátt í Ratsjánni Ratsjáin er ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum sem vilja auka nýsköpunarhæfni sína, hraða mikilvægum breytingaferlum og öðlast aukna yfirsýn og getu til að þróa vörur og þjónustu. Íslenski ferðaklasinn leiðir verkefnið í samstarfi við RATA og tengiliði frá landshlutasamtökum sveitarfélaga á Austurlandi, Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra, Vestfjörðum, Vesturlandi, Reykjanesi og Suðurlandi.
Lesa meira

Nýr vefur um rafbíla og hleðslu þeirra

Stöðug fjölgun rafbíla á Íslandi kallar á nýjar áskoranir. Eigendur rafbíla þurfa að huga að drægni þeirra, búnaði, leyfismálum, öryggi og heimahleðslu - ekki síst í fjölbýlishúsum.
Lesa meira

Húsnæði fyrir félagsmiðstöðina Neon fyrir unglinga, 14-16 ára

Fjallabyggð auglýsir eftir hentugu framtíðar húsnæði til kaups eða leigu á Siglufirði undir starfsemi félagsmiðstöðvarinnar NEON. Við val á húsnæði verður horft til eftirtalinna þátta: Að húsnæðið sé ekki minna en 220 fermetrar. Að húsnæðið uppfylli skilyrði um aðgengi fyrir hreyfihamlaða eða bjóði upp á breytingu á aðgengi. Að skipulag húsnæðisins og staðsetning sé með þeim hætti að það henti starfsemi félagsmiðstöðvarinnar.
Lesa meira

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, sýningaropnun í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði

Laugardaginn 28. nóvember kl. 14.00 opnar Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Þetta er árlegur viðburður hjá Aðalheiði sem ávallt sýnir það nýjasta sem hún er að fást við í list sinni og hefur um leið opið í anddyrinu þar sem sjá má ýmis smáverk sem ratað gætu í jólapakka.
Lesa meira

Afturgöngur og uppvakningar í draugaverksmiðjunni Gránu

Frá því í byrjun skólaárs hefur Síldarminjasafnið sinnt skipulagðri kennslu meðal barna í 5. bekk og unglinga á elsta stigi í Grunnskóla Fjallabyggðar. Námskeiðið miðar að því að fræða nemendur um hlutverk safna, skyldur þeirra og verkefni. Þannig fá nemendur innsýn í grunnstoðir safnastarfs sem felast í rannsóknum, söfnun, varðveislu, skráningu og miðlun og fá jafnframt að takast á við ólíkar áskoranir og verkefni.
Lesa meira

Skólaaksturstafla framlengd til 2. desember

Breyting verður á akstri skólarútu með hertum sóttvarnarreglum. Athugið að skólaakstur er aðeins hugsaður fyrir nemendur skólanna í Fjallabyggð og starfsfólk þeirra. Grímu­skylda í skólarútunni fyr­ir tíu ára (2010) og eldri.
Lesa meira

Alþjóðlegi klósettdagurinn 19. nóvember

Við eigum öll okkar þátt í mengun í vatni og sjó og því er það í okkar höndum að draga úr henni. Það á aðeins þrennt að fara í klósettið: Piss, kúkur og klósettpappír. Klósettið er enginn staður fyrir eyrnapinna, bómullarhnoðra, blautklúta, smokka og annað rusl. Þessir hlutir eiga að enda í ruslatunnunni. Auðvitað er svo besta lausnin að nota sem minnst af einnota hreinlætisvörum.
Lesa meira

193. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar

193. fundur Bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Tjarnarborg, Aðalgötu 13, Ólafsfirði,18. nóvember 2020 kl. 17.00
Lesa meira