08.10.2021
Fræðslu- frístunda- og menningarmáladeild Fjallabyggðar auglýsir verðkönnun í reglulega ræstingu og sumarhreingerningu/sumarþrif í húsnæði tónlistarskólans á Siglufirði samkvæmt lýsingu.
Heildarfjöldi fermetra í verðkönnuninni er 187,1 m².
Lesa meira
07.10.2021
List fyrir alla hefur formlega opnað glæsilegan vef þar sem hægt er að finna ítarlegar upplýsingar um barnamenningu og listviðburði fyrir ungt fólk sem gagnast bæði skólum og fjölskyldum.
Lesa meira
06.10.2021
Vakin er athygli á því að opnað verður fyrir umsóknir um menningar,- og fræðslustyrki, styrki vegna hátíða, styrki til reksturs safna og setra og umsóknir um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2022 fimmtudaginn 14. október nk. Umsóknarfrestur verður til og með 28. október nk.
Lesa meira
06.10.2021
Sunnudaginn 10. okt. kl 14.00 opnar J Pasila sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði sem ber yfirskriftina Ókunnugur. Sýningin er opin daglega frá kl. 14.00 - 17.00 til 24. október.
Þann sama dag kl. 15.30 verður Lydia Athanasopoulos með erindi á Sunnudagskaffi með skapandi fólki um rebetika sönghefð Grikklands. Athugið að erindið er á ensku.
Lesa meira
06.10.2021
Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra (SSNE) auglýsir eftir styrkumsóknum fyrir árið 2022.
Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum og veitir styrki í eftirfarandi þremur flokkum:
Verkefnastyrkir til atvinnuþróunar & nýsköpunar
Verkefnastyrkir á sviði menningar
Stofn- og rekststrarstyrkir á sviði menningar
Lesa meira
05.10.2021
Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar stendur fyrir fundi með ferðaþjónustu, menningar-, afþreyingar-, og þjónustuaðilum í Fjallabyggð Í Tjarnarborg þriðjudaginn 12. október frá kl. 17:00 – 18:30.
Lesa meira
05.10.2021
Bæjarstjórn og bæjarstjóri vilja koma kærum þökkum til allra þeirra viðbragðsaðila sem unnu að aðgerðum dagana 28. september og 2. október þegar rigningarvatn fór að flæða inn í hús bæði í Ólafsfirði og á Siglufirði. Ljóst er að ef þeirra nyti ekki við hefði ástandið orðið mun verra. Íbúar Fjallabyggðar fá einnig kærar þakkir fyrir dugnað og þolinmæði á meðan unnið var úr aðstæðum.
Lesa meira
04.10.2021
Þeir húseigendur sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni vegna vatns í Ólafsfirði aðfaranótt sunnudagsins 3. október er bent á að tilkynna tjónið til síns tryggingafélags. Jafnframt hefur Náttúruhamfaratrygging Íslands málið til skoðunar. Hægt er að tilkynna tjón rafrænt á heimasíðum tryggingafélaga.
Vakni frekari spurningar eða eitthvað er óljóst er einnig hægt að hafa samband við starfsmenn bæjarskrifstofu.
Lesa meira
27.09.2021
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða er í vörslu Ferðamálastofu. Samkvæmt lögum nr. 75/2011 um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða er markmið og hlutverk sjóðsins að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða og ferðamannaleiða um land allt og styðja með því við þróun ferðaþjónustu sem mikilvægrar og sjálfbærrar stoðar í íslensku atvinnulífi [Meira...]
Lesa meira
24.09.2021
Fræðslu- frístunda- og menningarmáladeild Fjallabyggðar óskar eftir tilboðum í reglulega ræstingu og sumarhreingerningu í Leikskóla Fjallabyggðar í Ólafsfirði samkvæmt útboðslýsingu.
Heildarfjöldi fermetra í útboðinu er 379,2 m².
Reiknað er með að ræsting á grundvelli útboðsins hefjist þann 15. nóvember 2021 og að gerður verði verksamningur um verkið til þriggja ára, eða til 14. nóvember 2024.
Lesa meira