Umsóknir um styrki Fjallabyggðar vegna ársins 2022

Vakin er athygli á því að opnað verður fyrir umsóknir um menningar,- og fræðslustyrki, styrki vegna hátíða, styrki til reksturs safna og setra og umsóknir um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2022 fimmtudaginn 14. október nk.  Umsóknarfrestur verður til og með 28. október nk.

Ábendingar og tillögur er varða fjárhagsáætlun 2022

Þeir íbúar, félagasamtök og fyrirtæki í Fjallabyggð sem vilja koma með ábendingar, tillögur og/eða erindi er varða fjárhagsáætlun 2022 eru hvattir til að senda þær inn til bæjaryfirvalda í netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is merkt fjárhagsáætlun 2022.