Tilkynning til íbúa í Ólafsfirði - uppfærð tilkynning

Mynd: Slökkvilið Fjallabyggðar
Mynd: Slökkvilið Fjallabyggðar

Þeir húseigendur sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni vegna vatns í Ólafsfirði aðfaranótt sunnudagsins 3. október er bent á að tilkynna tjónið til síns tryggingafélags. Jafnframt hefur Náttúruhamfaratrygging Íslands málið til skoðunar.  Hægt er að tilkynna tjón rafrænt á heimasíðum tryggingafélaga. 

Vakni frekari spurningar eða eitthvað er óljóst er einnig hægt að hafa samband við starfsmenn bæjarskrifstofu.