Nýr vefur - List fyrir alla

List fyrir alla hefur formlega opnað glæsilegan vef þar sem hægt er að finna ítarlegar upplýsingar um barnamenningu og listviðburði fyrir ungt fólk sem gagnast bæði skólum og fjölskyldum.

Á Norðurlandi eystra er menningarstarf öflugt, bæði ef litið er faglegs starfs sem og áhugamenningar. Þá er safnastarf einnig öflugt og safnaflóran mjög fjölbreytt og starfsemin til fyrirmyndar.

Á kortasjá á vef Listar fyrir alla má á einfaldan hátt sjá yfirlit yfir söfn, sýningar og setur sem bjóða börn og unglinga sérstaklega velkomin. Á síðunni er að auki margt fleira áhugavert til að kynna sér, t.d. viðburði, barnamenningarhátíðir og fleira skemmtilegt.

Við hvetjum alla til að kynna sér þennan nýja vef og fylgja þeim á Facebook.