Fréttir

Frisbígolfvöllur opnaður á Ólafsfirði

Frisbígolfvöllur opnaður á Ólafsfirði. Framkvæmdir standa nú yfir við að koma upp aðstöðu til að leika frisbígolf við tjaldsvæðið og tjörnina á Ólafsfirði. Búið er að setja upp nokkrar körfur og liggja brautirnar frá milli Tjarnarborgar íþróttamiðstöðvarinnar.
Lesa meira

Leikskólagjöld felld niður í verkfalli

Tilkynning til foreldra og forráðamanna barna í Leikskóla Fjallabyggðar. Fjallabyggð mun fella niður leikskólagjöld vegna skerðingar á vistun barna í verkfalli BSRB og aðildarfélaga þeirra. Leikskólagjöldin verða leiðrétt í samræmi við þær skerðingar sem börnin verða fyrir. Leiðrétting mun koma fram á næstu leikskólagjöldum.
Lesa meira

Nýr löndunarkrani á Hafnarbryggju á Siglufirði

Hafnarbryggjan á Siglufirði fékk nýjan löndunarkrana nú á dögunum og var hann tekinn í notkun í dag. Hringur SI 34 fékk fyrstu löndun úr hinum nýja krana.
Lesa meira

231. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar 7. júní kl. 12:00

231. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði 7. júní 2023 kl. 12.00
Lesa meira

Sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn í Fjallabyggð

Í Fjallabyggð er haldið upp á sjómannadaginn í Ólafsfirði með glæsilegri dagskrá. Á Siglufirði er lagður blómsveigur á minnisvarðann um týnda og drukknaða sjómenn og sjómenn heiðraðir.
Lesa meira

Gleðilegan sjómannadag

Fjallabyggð færir öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra þakkir fyrir þeirra mikilvægu störf og árnaðaróskir í tilefni sjómannadagsins.
Lesa meira

Tilkynning vegna yfirvofandi vinnustöðvunar félagsmanna innan BSRB

Ef samningar nást ekki milli sambands íslenskra sveitarfélaga og BSRB mun hluti starfsfólks sveitarfélagsins leggja niður störf frá og með mánudeginum 5. júní 2023 til og með miðvikudeginum 5. júlí 2023, þar sem Kjölur, stéttarfélag starfsmanna í almannaþágu er innan BSRB. Að svo stöddu ná verkfallsboðanir til félagsmanna Kjalar sem starfa í sundlaugum, íþróttamannvirkjum, leikskólum, bæjarskrifstofu, þjónustumiðstöð og Fjallabyggðarhöfnum. Í íþróttamiðstöðvum Fjallabyggðar er verkfallið ótímabundið.
Lesa meira

Sjómannadagur - Vegna viðburða í sundlauginni á Ólafsfirði

ATH ! Gestir sem ætla að fylgjast með viðburðum á Sjómannadaginn sem fram fara í sundlauginni á Ólafsfirði eru vinsamlegast beðnir um að ganga inn ofan við ræktina og beint á sundlaugarbakka. Athugið að ganga ekki gegnum búningsklefa út að laug. Gleðilegan Sjómanndag
Lesa meira

Viðvaranir á gönguleið upp í Hvanneyrarskál - Uppsetning stoðvirkja hafin

Vegna framkvæmda í Hafnarfjalli fyrir ofan Siglufjörð er mjög mikil hætta á grjóthruni úr fjallinu og er því öll óviðkomandi umferð ofan snjóflóðavarnargarðanna bönnuð milli kl. 07:00-17:00 mánudaga til laugardaga.
Lesa meira

550 rampur Íslands vígður við Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar í Ólafsfirði

Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar í Ólafsfirði fékk þann heiður að fá ramp númer 550 í verkefninu ,,Römpum upp Ísland“. Vígsla rampsins fór fram í dag, miðvikudaginn 31. maí við Íþróttamiðstöðina. Við vígsluna sagði Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri Fjallabyggðar nokkur orð og þakkað Haraldi Þorleifssyni og hans teymi fyrir frábært framtak. Að því búnu fékk Hanna Maronsdóttir heldri-borgari og íbúi í Ólafsfirði það verðuga hlutverk að klippa á borðann og vígði rampinn þar með formlega. Fjallabyggð bauð svo gestum upp á léttar veitingar í anddyri íþróttamiðstöðvarinnar.
Lesa meira