Göngum í skólann www.gongumiskolann sem verður sett í sautjánda sinn miðvikudaginn 6. september nk. og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 4. október (www.iwalktoschool.org). Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni sína til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.
Á hverju ári taka milljónir barna í yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt. Fyrsta árið voru þátttökuskólarnir 26 en alls skráðu 84 skólar sig til leiks árið 2022.
Grunnskóli Fjallabyggðar tekur þátt í átakinu og er markmið verkefnisins að hvetja börnin til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka um leið færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Eru allir nemendur sem og starfsfólk grunnskólans hvött til að taka þátt og ganga eða hjóla í skólann þessa daga.
Heilsueflandi Fjallabyggð hvetur foreldra og börn til að nýta góða veðrið og ganga eða hjóla í skóla og vinnu.
Vegfarendur eru sömuleiðis beðnir um að sýna sérstaka aðgát í umferðinni og taka tillit til skólabarnanna. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að tryggja að börnin þeirra séu vel sýnileg á leið sinni til og frá skóla.
Á heimasíðu Göngum í skólann www.gongumiskolann.is eru allar nánari upplýsingar um verkefnið en þar má m.a. finna skemmtilegar útfærslur nokkurra skóla á Íslandi á verkefninu. Einnig er hægt að hafa samband við Lindu Laufdal verkefnastýru verkefnisins á linda@isi.is.
Á vef samgöngustofu má finna frábær myndbönd um umferðaröryggi https://www.umferd.is/nemendur/5-7-bekkur/leikir/myndbond
Ágrip af sögu verkefnisins
Árið 1976 hófst verkefnið ,,Öruggari leið í skólann“ í Óðinsvéum í Danmörku eftir að mörg börn höfðu látist í umferðarslysum. Forystumenn í samfélaginu, kennarar, stjórnmálamenn og opinbert starfsfólk tók höndum saman til að breyta hættulegum götum í öruggar leiðir. Þremur árum síðar hafði árlegt slysahlutfall lækkað um 85%.
Síðan hefur þessu verkefni verið hleypt af stokkunum í löndum eins og Bretlandi, Ástralíu, Frakklandi, Japan og Bandaríkjunum. Samtökin Greenest City í Ontario áttu frumkvæðið með þátttöku þriggja skóla á Toronto-svæðinu árið 1997. Á sama tíma kostaði Greater Vancouver Regional District (GVRD) verkefni sem hvatti til virkari samgangna og varð það upphafið að ,,Way to Go!“ skólastarfinu. Fljótlega eftir það var ,,Öruggari leið í skólann“ komið á um allt Kanada.
Skólagöngudagurinn
,,Göngum með börnunum“ í skólann hófst 1997 í Chicago á vegum ,,Partnership for a Walkable America“. Árið 1998 hóf „Go for Green“ landsátakið ,,Virkar og öruggar“ leiðir í skólann í samstarfi við fyrsta ,,Skólagöngudaginn“ í Kanada. Þátttakan hefur aukist með ári hverju og árið 2003 tóku rúmlega 1900 skólar í Kanada þátt.
Árið 2004 varð ,,Alþjóðlegi skólagöngudagurinn“ að viku. Nú gengur verkefnið þannig fyrir sig að skólar geta valið sér að hafa átakið á þann máta sem hentar þeim, s.s. einn skólagöngudag, eina skólagönguviku eða nýtt sér alþjóðlega skólagöngumánuðinn - október - til að hvetja til þess að ganga í skólann.
Tenglar:
http://www.iwalktoschool.org/
http://www.saferoutesinfo.org/
http://www.walkbiketoschool.org/