Laus er 50% staða í Frístund og Lengdri viðveru í Grunnskóla Fjallabyggðar

Laus er ríflega 50% staða starfsmanns í Frístund og lengdrar viðveru í skólahúsinu við Norðurgötu á Siglufirði. Vinnutími er frá kl. 12:00 til kl. 16:15 alla virka daga. 

Starfið felst í að sinna gæslu í frímínútum og vinna að frístundastarfi yngri barna eftir að hefðbundinni kennslu lýkur. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt í lifandi umhverfi þar sem áhersla er lögð á góð samskipti.

Umsóknum um störfin skal skilað, ásamt kynningarbréfi og ferilskrá, í tölvupósti á netfang Ásu Bjarkar Stefánsdóttur skólastjóra, asabjork@fjallaskolar.is.

Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst 2023.

Umsækjendur þurfa að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá. Nánari upplýsingar fást hjá skólastjóra í síma 4649150 eða 6959998