Umhyggjudagurinn 26. ágúst 2023

Vegna Umhyggjudagsins verður frítt í sund í sundlaugum Fjallabyggðar laugardaginn 26. ágúst frá kl. 14:00 og 16:00.
Glaðningur fyrir alla krakka sem mæta í sund, á meðan birgðir endast.

Hvað er Umhyggja?Umhyggja-icon-blatt-1

Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra. Umhyggja býður m.a. upp á endurgjaldslausa sálfræðiþjónustu og lögfræðiráðgjöf fyrir foreldra, niðurgreidd námskeið fyrir systkini, fjárstyrki, orlofshús, aðstoð við réttindabaráttu ásamt ráðgjöf til fjölskyldna og fagaðila.

Umhyggja reiðir sig alfarið á styrki frá einstaklingum og fyrirtækjum í samfélaginu. Með því að styrkja Umhyggju gerir þú félaginu kleift að styðja við fjölskyldur langveikra barna.

Þú getur gerst Umhyggjusamur einstaklingur með mánaðarlegum framlögum til Umhyggju með því að fara inn á umhyggja.is.

Fjölbreytt dagskrá á Umhyggjudaginn um land allt

  • Frítt í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn kl. 14 til 17 (skráning fyrir boðsmiða)
  • Skopp býður börnum að skoppa kl. 12 til 13 (skráning fyrir boðsmiða - ath takmarkað pláss)
  • Bakarameistarinn býður börnum Umhyggjusnúð frá kl. 11
  • Frítt í sund í yfir 40 sveitarfélögum kl. 14 til 16
  • Sambíóin bjóða fjölskyldum á myndina Elemental í Kringlubíó kl. 16 (skráning fyrir boðsmiða - ath takmarkað pláss)

Glaðningur fyrir alla krakka sem mæta í sund eða Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, á meðan birgðir endast.