08.09.2023
Í dag var undirritaður samningur á milli stjórnar Félags eldri borgara í Ólafsfirði og Fjallabyggðar vegna húseignarinnar Bylgjubyggð 2, þ. e. hús eldri borgara.
Þar með verður Fjallabyggð þinglýstur eigandi húseignarinnar og tekur yfir rekstur hennar. En Félag eldri borgara mun fá endurgjaldslaus afnot af hluta hússins fyrir félagsstarf sitt.
Lesa meira
07.09.2023
Beginners A1-1. A course for beginners and those who speak little or no icelandic and want to learn more, starts September 20th, 2023.
Fyrir þau sem hafa lokið stigi 1 og/eða hafa grunnfærni í íslensku. Námskeið hefst 20. september 2023
Level 3 A2-1. A course for those who have finished Level 2 and/or have good understanding in icelandic, starts September 12th, 2023.
Fyrir þau sem hafa lokið stigi 2 og/eða hafa góða undirstöðu í íslensku. Námskeið hefst 12. september 2023.
Lesa meira
04.09.2023
Í dag stendur yfir Farsældarþing í Hörpu. Á þessu fyrsta Farsældarþingi eiga fagfólk, þjónustuveitendur, stjórnvöld, börn og aðstandendur víðtækt samtal um farsæld barna og er þingið mikilvægur liður í stefnumótun og áætlanagerð þegar kemur að innleiðingu laga um farsæld barna.
Lesa meira
04.09.2023
Deiliskipulag fyrir brimbrettaaðstöðu við Brimnestungu í Ólafsfirði og breyting á aðalskipulagi – kynning skipulagstillaga á vinnslustigi
Fimmtudaginn 7. september milli kl. 13:00 – 15:00 verður skipulagsfulltrúi með opið hús í Ráðhúsi Fjallabyggðar að Gránugötu 24 þar sem tillögurnar verða kynntar þeim sem þess óska.
Lesa meira
04.09.2023
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í hraðalinn STARTUP STORM - Vaxtarrými fyrir norðlenska sprota.
Þriðjudaginn 5. september fer fram opinn kynningarfundur á hraðlinum Startup Storm, sem Norðanátt stendur fyrir. Norðanátt er hreyfiafl nýsköpunar á Norðurlandi og er markmið okkar að skapa kraftmikið samfélag fyrir frumkvöðla og fyrirtæki á svæðinu sem eru að vinna að nýsköpun með áherslu á loftslagsmál og hringrásarhagkerfið.
Lesa meira
04.09.2023
Opið er fyrir umsóknir um styrki úr bæjarsjóði fyrir árið 2024. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til kl. 15:00 mánudaginn 25. septmeber nk. Einungis verður hægt að sækja um rafrænt inn á Rafræn Fjallabyggð.
Lesa meira
01.09.2023
Að gefnu tilefni vill Fjallabyggð taka fram að við sorplosun frá heimilum er notast við sérútbúinn bíl þegar plast- og pappa tunnur eru losaðar. Bíllinn er tvískiptur og með honum er hægt að losa t.d. almennt sorp og endurvinnanlegt í sömu ferð án þess að blanda því tvennu saman. Því er allri flokkun í Fjallabyggð haldið til haga líkt og ráð er fyrir gert.
Lesa meira
31.08.2023
Föstudaginn 1. september er akstur skólarútu með breyttu sniði vegna skipulagsdags grunnskólans og engin staðkennsla verður í MTR.
Skólarútan keyrir á eftirfarnadi tímum:
Lesa meira
31.08.2023
Sveitarfélagið Fjallabyggð óska eftir tilboðum í verkið: Sorphirða í Fjallabyggð
Verkið fellst í tæmingu á sorp- og endurvinnsluílátum við hús í Fjallabyggð ásamt flutningi úrgangs og afsetningu.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Útboðsgögn fást send frá og með miðvikudeginum 30. ágúst 2023. Sendið beiðni á armann@fjallabyggð.is og gefið upp nafn samskiptaaðila í útboði, símanúmer og netfang.
Tilboðum skal skilað til skrifstofu Fjallabyggðar, Gránugötu 24, 580 Siglufirði fyrir kl. 11:00 miðvikudaginn 5. október 2023 og verða þau opnuð þar.
Lesa meira
29.08.2023
Leikskálar á Siglufirði fagna 30 ára afmæli í dag 29. ágúst. Leikskólinn Leikskálar var tekinn í notkun haustið 1993. Nú er hann hluti af Leikskóla Fjallabyggðar ásamt Leikhólum á Ólafsfirði frá árinu 2010
Lesa meira