Fjallabyggð - Útboð Sorphirða í Fjallabyggð

Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í verkið: Sorphirða í Fjallabyggð

Verkið fellst í tæmingu á sorp- og endurvinnsluílátum við hús í Fjallabyggð ásamt flutningi úrgangs og afsetningu.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Útboðsgögn fást send frá og með miðvikudeginum 30. ágúst 2023. Sendið beiðni á armann@fjallabyggð.is og gefið upp nafn samskiptaaðila í útboði, símanúmer og netfang.

Tilboðum skal skilað til skrifstofu Fjallabyggðar, Gránugötu 24, 580 Siglufirði fyrir kl. 11:00 miðvikudaginn 5. október 2023 og verða þau opnuð þar.