Fréttir

N4 í Fjallabyggð

Að undanförnu hafa dagskrárgerðarmenn N4 verið duglegir að heimsækja Fjallabyggð, flytja þaðan fréttir og stuttar kynningar af atvinnulífi staðarins. Eins og margir vita er nú mögulegt fyrir íbúa Fjallabyggðar að ná útsendingum N4 Sjónvarp Norðurlands í gegnum dreifikerfi Digital Ísland á rás 15.
Lesa meira

Nýr starfsmaður hefur tekið til starfa í Fjallabyggð.

Valur Þór Hilmarsson var nýverið ráðinn garðyrkju- og umhverfisfulltrúi hjá Fjallabyggð og hefur hann tekið til starfa.
Lesa meira

Íbúð til sölu eða leigu

Húsnæðisnefnd Fjallabyggðar auglýsir til sölu eða leigu:
Lesa meira

Breyting á aðalskipulagi Ólafsfjarðar 1990-2010 og tillögu að deiliskipulagi hesthúsahverfis, Ólafsfirði

Auglýsing um breytingu á Aðalskipulagi Ólafsfjarðar 1990-2010 og tillögu að deiliskipulagi hesthúsahverfis, Ólafsfirði.
Lesa meira

Heimilissorp í Ólafsfirði

Heimilissorp í Ólafsfirði verður ekki tekið þessa viku, þar sem vinnuskólinn hefur hætt starfsemi í ár. Stefnt er að því að sorpið verði tekið á fimmtudaginn í næstu viku þegar 10. bekkur er mættur í skólann.
Lesa meira

Leiksýning í Ólafsfirði

Hinn fátæki armur Stúdentaleikhússins sýnir Vituð ér enn eða hvað? Í Tjarnarborg fimmtudaginn 21. ágúst og föstudaginn 22. ágúst kl. 21.00.  
Lesa meira

Viðbygging tekin í notkun

Leikskólinn Leikhólar opnaði formlega í dag eftir sumarfrí. Unnið hefur verið að stækkun leikskólans undanfarið ár og var viðbygging við hann tekin í notkun í dag.
Lesa meira

Umsóknarfrestur vegna byggðakvóta framlengdur

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur ákveðið að umsóknarfrestur um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2007/2008 skuli framlengdur fyrir nokkur tiltekin byggðarlög. Nýr frestur til að skila umsóknum er til 1. september 2008, og vakin er athygli á að áður sendar umsóknir gilda áfram. Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna á vef fiskistofu.
Lesa meira

Styrkir menntamálaráðuneytis til mótvægisaðgerða vegna tímabundins aflasamdráttar

Menntamálaráðherra hefur ákveðið að veita allt að 180 m.kr. til menntaverkefna á landsbyggðinni sem eru þáttur í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna tímabundins aflasamdráttar.
Lesa meira

Styrkir úr Æskulýðssjóði

Næsti umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er 1. september 2008. Æskulýðssjóður starfar samkvæmt æskulýðslögum nr. 70/2007 og reglum um Æskulýðssjóð nr. 60/2008. Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:
Lesa meira