Næsti umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er 1. september 2008.
Æskulýðssjóður starfar samkvæmt æskulýðslögum nr. 70/2007 og reglum um Æskulýðssjóð nr. 60/2008. Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:
1. Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra.
2. Þjálfun forustufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða.
3. Nýjungar og þróunarverkefni.
4. Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.
Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta viðburði í félagsstarfi, svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði, né ferðir hópa.
Menntamálaráðherra úthlutar styrkjum úr Æskulýðssjóði að fengnum tillögum stjórnar Æskulýðssjóðs.
Umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er fjórum sinnum á ári, 1. febrúar, 1. apríl, 1. september og 1. nóvember og er umsóknarfrestur auglýstur hverju sinni.
Í umsókn til Æskulýðssjóðs skulu koma fram upplýsingar um:
- nafn æskulýðsfélags eða æskulýðssamtaka
- nafn og heimilisfang umsækjanda
- heiti, lýsing og markmið verkefnis, ásamt kostnaðar- og tímaáætlun
- áætlaðan fjölda þátttakenda
- samstarfsaðila eftir því sem við á
- kennitölu og númer bankareiknings er styrkurinn á að leggjast inn á ef viðkomandi hefur fengið úthlutað styrk.
Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins á vefslóðinni http://umsoknir.stjr.is.
Nánari upplýsingar um Æskulýðssjóð veitir Pálína Kristín Garðarsdóttir í síma 545 9500 eða í tölvupósti á palina.gardarsdottir@mrn.stjr.is