12.11.2020
Árlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 15. nóvember 2020. Dagurinn er haldinn til að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni en ekki hvað síst til að þakka þeim viðbragðsaðilum sem veita hjálp og björgun.
Lesa meira
10.11.2020
Vakin er athygli á því að næsti bæjarstjórnarfundur verður miðvikudaginn 18. nóvember nk. kl. 17:00 í Tjarnarborg Ólafsfirði.
Samkvæmt venjubundnum fundartíma bæjarstjórnar, sem er annar miðvikudagur í mánuði, hefði næsti fundur átt að vera miðvikudaginn 11. nóvember nk.
Þetta tilkynnist hér með.
Lesa meira
03.11.2020
Bæjarráð hafnar tilboði í viðbyggingu Íþróttamiðstöðvarinnar á Siglufirði.
Á 673. fundi bæjarráðs í morgun var samþykkt að hafna því eina tilboði sem fékkst í viðbyggingu Íþróttamiðstöðvarinnar á Siglufirði. Ástæða höfnunar er að tilboð sem barst var töluvert hærra en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir, ákvörðun bæjarráðs er einnig tekin í ljósi mikillar óvissu í efnahagsmálum þjóðarinnar.
Lesa meira
02.11.2020
Lokað er fyrir allar heimsóknir á Hornbrekku. Staðan verður metin 9. nóvember nk.
Lesa meira
01.11.2020
Á morgun mánudag 2. nóvember lokum við klukkan 12:00 vegna skipulagsdags. Ástæðan er að við þurfum að bregðast við nýrri reglugerð um skólastarf vegna covid. Foreldrar fá svo nánari upplýsingar um skólastarfið eftir skipulagsdaginn.
Lesa meira
01.11.2020
Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að nýjar hertar sóttvarnarreglur tóku gildi á miðnætti 31. október sl. Ný reglugerð um takmarkanir á skólastarfi verður kynnt á næstunni. Tekin hefur verið ákvörðun um að mánudaginn 2. nóvember verði starfsdagur í Grunnskóla Fjallabyggðar. Stjórnendur og starfsfólk skólans þurfa svigrúm til að skipuleggja skólastarfið sem best.
Lesa meira
30.10.2020
Íþróttamannvirki sveitarfélagsins, íþróttahús og sundlaugar, munu því loka frá og með 31. október og varir lokunin á meðan á samkomubanni stendur eða til og með 17. nóvember.
Lesa meira
30.10.2020
Skrifstofa Fjallabyggðar verður lokuð frá og með mánudeginum 2. nóvember til og með 17. nóvember 2020. Ráðstafanir þessar eru gerðar í þeim tilgangi að draga eftir mætti úr smithættu og tryggja sem best að starfsemi og þjónusta haldist órofin. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar ráðstafanir kunna að fela í sér fyrir íbúa og aðra.
Lesa meira
30.10.2020
Vegna kórónuveirusmita í nærsamfélaginu verðum við því miður að boða hertar sóttvarnaraðgerðir á Hornbrekku.
Lokað er fyrir allar heimsóknir um óákveðin tíma, staðan verður metin eftir helgina og þá koma nýjar upplýsingar.
Lesa meira
30.10.2020
Vegna þess ástands sem ríkir í samfélaginu vegna Covid-19 hefur það reynst erfitt að skipuleggja viðverustundir á mismunandi stöðum landshlutans eins og við helst hefðum viljað. Margir umsækjendur hafa haft samband við okkur beint og það er ánægjulegt að sjá vídd og breidd í þeim hugmyndum sem eru í smíðum.
Lesa meira