24.08.2020
Lokað verður fyrir kaldavatnið í norðurhluta Hlíðarvegar í Ólafsfirði frá kl. 8:00-12.00 á morgun, þriðjudaginn 25. ágúst.
Lesa meira
21.08.2020
Ákveðið hefur verið að loka tjaldsvæðunum á Stóra Bola og á Rammatúninu frá og með mánudeginum 24. ágúst nk.
Áfram verður opið á tjaldsvæðinu í Ólafsfirði og tjaldsvæðinu í miðbæ Siglufjarðar og þar er full þjónusta. Nægt pláss er á þessum tveimur tjaldsvæðum til að anna eftirspurn fram að auglýstri lokun 15. október nk.
Lesa meira
20.08.2020
Grunnskóli Fjallabyggðar afhendir nemendum ritfangapakka að gjöf frá sveitarfélaginu við skólabyrjun haustið 2020. Ætlast er til þess að nemendur í 1.-5.bekk geymi og noti ritföngin í skólanum og fá þau körfu undir þau.
Lesa meira
19.08.2020
Skólasetning Grunnskóla Fjallabyggðar verður föstudaginn 21. ágúst nk.
Nú er nýtt skólaár að hefjast og enn erum við í sömu stöðu og við vorum í vor, Covid ástandi. Þessi tími setur okkur skorður sem gerir það að verkum að við bjóðum ekki foreldra/forráðmenn með nemendum á skólasetningu. Við viljum reyna að takmarka umgengni í skólahúsunum að mestu við starfsmenn og nemendur og biðjum aðra um að reka erindi sín símleiðis eða rafrænt ef hægt er.
Lesa meira
17.08.2020
Siglfirðingafélagið og Vildarvinir Siglufjarðar færðu Fjallabyggð gjöf í tilefni af 100 ára kaupstaðarafmæli Siglufjarðar þann 20. maí 2018.
Lesa meira
14.08.2020
Nú þegar sumri er tekið að halla og sumarfríum er að ljúka er tilhlýðilegt að setja saman pistil og fara örlítið yfir stöðu dagsins.
Lesa meira
14.08.2020
Opnunartími Íþróttamiðstöðva er áfram eins og auglýst hefur verið frá kl. 06:30 – 12:30 og 14:00 – 19:00 alla virka daga og um helgar frá kl. 10:00 – 12:30 og 14:00 – 18:00.
Aldrei er fleiri en 20 einstaklingum 16 ára og eldri heimilt að vera í klefum á sama tíma. Fjöldatakmarkanir gilda ekki um börn yngri en 16 ára. Sundlaugargestir skulu virða 2 metra fjarlægðarreglu í laug og heitum pottum.
Lesa meira
13.08.2020
Nýtt skólaár er að hefjast og tekur ný aksturstafla skólarútu gildi mánudaginn 17. ágúst nk.
Lesa meira
12.08.2020
Það er aldrei of seint að fagna fjölbreytileikanum. Því miður náðist ekki að mála gangbrautir í byggðarkjörnunum fyrir síðustu helgi í regnbogalitum vegna bleytu en ákveðið var að mála engu að síður þó Hinsegin dagar hafi verið í síðustu viku.
Lesa meira
07.08.2020
Ákveðið hefur verið að opna líkamsræktir Fjallabyggðar, með takmörkunum, mánudaginn 10. ágúst ef ekki kemur til hertra sóttvarnaraðgerða.
Opið verður frá kl. 06:30 – 10:00 og 16:00 – 19:00 alla virka daga.
Um helgar verður opið frá 10:00 – 12:30 og 14:00 – 18:00.
Lesa meira