08.10.2017
Tilkynning frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra.
Staðfest hefur verið að sýni sem Heilbrigðiseftirlitið tók þann 5. október sl. á Ólafsfirði, innihéldu Escherichia coli (E. coli) gerla. Vatnsveitan á Ólafsfirði fær vatn úr 2 vatnsbólum þ.e. úr Múla og Brimnesdal. Niðurstaða sýnatöku gefur til kynna að vatnsbólið sem þjónar einkum nyrðri hluta bæjarins m.a. fiskvinnslunum á Ólafsfirði sé í lagi og vandinn sé bundinn við vatnsbólið í Brimnesdal.
Flestar E. coli bakteríur eru skaðlitlar, en ef E. coli finnst í neysluvatni, þá bendir það til þess að hættulegar bakteríur geti leynst í vatninu. Íbúum er því ráðlagt sem varúðarráðstöfun að sjóða vatnið. Umhverfis- og tæknideild Fjallabyggðar hefur verið upplýst um málið og hefur nú þegar hafið vinnu við endurbætur.
Lesa meira
05.10.2017
Þjónustuhópur í málefnum fatlaðra hjá Dalvíkurbyggð og Fjallabygg auglýsir opið fyrir umsóknir um styrki vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa fatlaðra
Lesa meira
05.10.2017
Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2017/2018. Úthlutunin fer fram á grundvelli aflahlutdeilda að teknu tilliti til 5,3% frádráttar fyrir jöfnunaraðgerðir með sama hætti og á fyrra fiskveiðiári. Að þessu sinni er úthlutað 375.589 tonnum í þorskígildum talið samanborið við um 365.075 þorskígildistonn í fyrra, reiknað í þorskígildum fiskveiðiársins sem nú gengur í garð.
Lesa meira
05.10.2017
Bleiki dagurinn verður haldinn hátíðlegur föstudaginn 13. október 2017
Bleiki dagurinn hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár í hinum bleika októbermánuði. Þennan dag hvetjum við alla landsmenn til að sýna samstöðu, klæðast bleiku og hafa bleikt í fyrirrúmi.
Taktu föstudaginn 13. október frá!
Föstudagurinn 13. október er Bleiki dagurinn. Hvernig væri nú að skipuleggja bleikt kaffiboð í vinnunni eða heima fyrir? Einnig er tilvalið að klæðast bleikum fötum í tilefni dagsins.
Við hvetjum alla til að senda okkur skemmtilegar, bleikar myndir af sér og vinahópum eða vinnufélögum á netfangið bleikaslaufan@krabb.is og munum við birta þær hjá okkur á facebooksíðu Bleiku slaufunnar. Merkið myndirnar #bleikaslaufan
Ef að fyrirtæki vilja styrkja Bleiku slaufuna þennan dag þá lumum við á ýmsum skemmtilegum hugmyndum hér .
Lesa meira
05.10.2017
Félagarnir á skíðasvæði Siglufjarðar, Skarðsdal, hafa ákveðið að opna skíðasvæðið þann 1. desember nk. Engin hækkun verður á lyftumiðum og vetrarkortum frá því í fyrra.
Lesa meira
05.10.2017
Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og var þetta því í 23. sinn sem þau voru afhent en að þessu sinni hlaut Síldarminjasafnið verðlaunin fyrir fegrun umhverfis og bætt aðgengi. Anita Elefsen safnstjóri og Örlygur Kristfinnsson forveri hennar tóku á móti verðlaununum á Ferðamálaþingi í Hörpu.
Lesa meira
04.10.2017
Líkamsræktin á Siglufirði verður lokuð vegna bridge-móts eftirfarna daga:
Föstudaginn 6. október,
Laugardaginn 7. október
Sunnudaginn 8. október
Athugið að sundlaugin verður opin samkvæmt venju.
Lesa meira
03.10.2017
Tökur á annarri sjónvarpsþáttaröðinni af Ófærð hefjast á Siglufirði þann 14. október nk.
Vinna við upptökur krefst m.a. þess að götum og bílastæðum verði lokað tímabundið og leikmynd verði komið upp þar sem hún þjónar tilgangi sögunnar. Þá hefur bæjarráð gefið sérstakt leyfi til þess að loka bílastæðum við ráðhústorg tímabundið, til þess að setja dautt fé á ráðhústorgið og til þess að fjarlægja málningu af stæði fyrir hreyfihamlaða við Ráðhúsið en það yrði málað aftur að upptökum loknum. Íbúar Fjallabyggðar verða upplýstir um gang mála í formi dreifibréfa og eða á samfélagsmiðlum meðan á tökum stendur.
Lesa meira
03.10.2017
Lausar eru til umsóknar athafnalóðir við hafnarsvæðið á Siglufirði. Í nýju deiliskipulagi svæðisins er gert ráð fyrir tveimur athafnalóðum (A og B) með möguleika á stækkun til norðurs (C). Um er að ræða áhugaverða staðsetningu fyrir hafnsækna starfsemi, innlenda og erlenda, t.d. frystigeymslur, fiskvinnslu eða útgerð. Árið 2016 voru gerðar gagngerar endurbætur á Hafnarbryggju sem stendur sunnan við athafnalóðirnar. Þá var nýr viðlegukantur byggður og innsigling og hafnarsvæði dýpkuð. Nú geta skip sem eru allt að 250 m. löng og með 9,5 m. djúpristu lagst þar að bryggju. Möguleiki er á lengingu viðlegukants til norðurs.
Stærðir lóðanna samkvæmt gildandi aðal- og deiliskipulagi eru eftirfarandi.
Lesa meira
03.10.2017
Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur samþykkt að auglýsa skipulags- og matslýsingu fyrir endurskoðun á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028. Bæjarbúar eru hvattir til að kynna sér lýsingu þessa en þar koma m.a. fram áherslur sveitarstjórnar við skipulagsgerðina. Með gerð og kynningu lýsingar í upphafi verks er almenningi og umsagnaraðilum gefinn kostur á því að leggja fram sjónarmið og ábendingar sem að gagni gætu komið við gerð skipulagsins.
Lesa meira