Fiskveiðiárið 2017/2018

Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2017/2018. Úthlutunin fer fram á grundvelli aflahlutdeilda að teknu tilliti til 5,3% frádráttar fyrir jöfnunaraðgerðir með sama hætti og á fyrra fiskveiðiári.
Að þessu sinni er úthlutað 375.589 tonnum í þorskígildum talið samanborið við um 365.075 þorskígildistonn í fyrra, reiknað í þorskígildum fiskveiðiársins sem nú gengur í garð. Aukning á milli ára samsvarar því um 10.500 þorskígildistonnum. Úthlutun í þorski er um 203 þúsund tonn og hækkar um tæp 9.000 tonn frá fyrra ári. Ýsukvótinn er 31.732 tonn og hækkar um 4.200 tonn og er sama aukning í ufsakvótanum. Tæplega 1.700 tonna samdráttur er úthlutun á gullkarfa og tæplega 1.100 tonna samdráttur í  djúpkarfa. Þá er úthlutun í íslenskri sumargotssíld 29.000 tonnum lægri en í fyrra. Úthlutað aflamark er alls 422.786 tonn sem er tæplega 6.600 tonnum minna en á fyrra ári.

Alls fá 489 skip úthlutað aflamarki að þessu sinni samanborið við 499 á fyrra fiskveiðiári. Það skip sem fær úthlutað mestu aflamarki er Sólberg ÓF 1, en það fær 9.716 þorskígildistonn eða 2,6% af úthlutuðum þorskígildum.

Þrjár heimahafnir skera sig úr eins og undanfarin ár með að skip sem þeim tilheyra fá töluvert mikið meira úthlutað í þorskígildum talið en þær hafnir sem á eftir koma. Mest fer til skipa með heimahöfn í Reykjavík eða 12,3% af heildinni samanborið við 12,1% í fyrra. Næstmest fer nú til Grindavíkur, eða 10,8% af heildinni samanborið við 10,6% á fyrra ári. Skip með heimahöfn í Vestmannaeyjum ráða fyrir 9,9% úthlutunarinnar eins og í fyrra.

Úthlutun til Fjallabyggðar er sem hér segir: (ÞÍG kg. = Þorskígildi í kílóum)

Úthlutun til Fjallabyggðar

Úthlutun til einstakra báta í Fjallabyggð er sem hér segir:

Úthlutun til einstakra báta í Fjallabyggð

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Fiskistofu undir "Úthlutun á aflamarki 2017/2018"

Heimild: www.fiskistofa.is