Skíðasvæðið Skarðsdal opnar þann 1. desember

Félagarnir á skíðasvæði Siglufjarðar, Skarðsdal, hafa ákveðið að opna skíðasvæðið þann 1. desember nk. Engin hækkun verður á lyftumiðum og vetrarkortum frá því í fyrra.

Vetraarkort barna 9-17 ára kr. 10.000.- 
Vetraarkort fyrir 18 ára og eldri kr. 25.000.-
Vetraarkort framhalds og háskólanema kr. 15.000.-

Tilboð á vetrarkortum í nóvember verða auglýst síðar. 

Framkvæmdir eru hafnar við nýjan veg 1200 metra langan og verða gerð stór og góð bílastæði og vonandi á næsta ári rís nýr skáli,  neðstalyftan  mun færast og liggja frá nýjum skála og upp á Súlur og vonandi kemur töfrateppi í fjallið  sem verður einnig út frá nýjum skála og má nú segja að miklar framkvæmdir séu hafnar til hins betra fyrir alla gesti.

Allar nánari upplýsingar á http://www.skardsdalur.is/

Sjáumst hress í Skarðsdalnum