18.04.2008
Krakkarnir frá Grunnskóla Siglufjarðar stóðu sig frábærlega í gærkvöldi í úrslitakeppni Skólahreysti. Það var lið Hagaskóla sem sigraði eftir skemmtilega og spennandi úrslitakeppni, fékk 53 stig.
Lesa meira
17.04.2008
Frá því segir á www.sksiglo.is að þegar sé farið að nýta sér göngin til að ferðast á milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar.
Steingrímur segir frá því að á ferð sinni í göngunum í morgun hafi hann mætt manni frá Ólafsfirði á leið til starfa á Siglufirði. Maðurinn hafði komið á snjósleða yfir í Héðinsfjörð og þaðan fór hann í gegnum göngin á jeppanum sínum sem hann geymdi í Héðinsfirði.
Lesa meira
16.04.2008
Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í eftirfarandi tvö verkefni á Siglufirði.
Lesa meira
16.04.2008
Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í gatnagerð á Siglufirði og Ólafsfirði árið 2008.
Lesa meira
16.04.2008
Lokaathöfn stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Dalvíkurkirkju á mánudag. Þar komu fram átta nemendur sem allir lásu mjög vel. Skáld keppninnar voru að þessu sinni Jón Sveinsson (Nonni) og Steinn Steinarr.
Á lokahátíðinni komu saman þeir þrír nemendur 7. bekkjar sem þóttu standa sig best í undankeppni hvers skóla í Dalvíkurbyggð og Ólafsfirði.
Lesa meira
16.04.2008
Búið er að troða göngubraut langt inn í Skeggjabrekkudal. Fært er fyrir bíla upp í golfskála og byrjar brautin þar. Upp í dal er 12 stiga hiti, sól og blíða.
Lesa meira
16.04.2008
Ljósmyndasafn Steingríms og vefurinn Lífið á Sigló hefur skipt um eigendur.
Stofnað hefur verið fyrirtæki með nafninu SKSigló ehf. utan um rekstur þess.
Eigendur fyrirtækisins eru Steingrímur Kristinsson og fyrirtækið Rauðka hf. en að því standa m.a. Róbert Guðfinnsson og Sparisjóður Siglufjarðar ásamt fleirum.
Lesa meira
15.04.2008
Þann 15. maí n.k. munu Heimili og skóli – landssamtök foreldra veita hin árlegu Foreldraverlaun og er það nú gert í 13. sinn.
Leitað var eftir tilnefningum um einstakling, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög eða skóla á leik-. grunn- og framhaldsskólastigi sem stuðlað
hafa að árangursríkum leiðum til að efla samstarf foreldra og kennara og verkefnum sem hafa komið sér vel fyrir foreldra eða börn á einhvern
hátt. Alls bárust 35 tilnefningar.
Lesa meira
15.04.2008
Fimmtudaginn 10 apríl úthlutaði Menningarráð Eyþings verkefnastyrkjum til menningarstarfs á starfssvæði Eyþings. Er þetta önnur úthlutun ráðsins og fór athöfnin fram í Tónlistarhúsinu Laugarborg að viðstöddu fjölmenni. Alls bárust ráðinu 75 umsóknir um rúmar 60 milljónir. 49 verkefni hlutu styrk að upphæð rúmar 20 milljónir króna, þar af voru fjögur verkefni úr Fjallabyggð.
Lesa meira
15.04.2008
Bæjarskrifstofur Fjallabyggðar verða lokaðar eftir hádegi miðvikudaginn 23. apríl nk., vegna starfsmannafundar.
Skrifstofu- og fjármálastjóri.
Lesa meira