Fréttir

Atvinna – Íþróttamiðstöð Ólafsfjarðar

Íþróttamiðstöð Ólafsfjarðar óskar eftir að ráða karlmann í 100% starf. Þarf að geta hafið störf sem fyrst, eða eftir samkomulagi. Um er að ræða tímabundna ráðningu við sundlaugavörslu, baðvörslu (karla), hreingerningar og fleira.
Lesa meira

Dagsbirta frá Héðinsfirði lýsti upp gangamunnann að austanverðu.

Síðasta haftið í göngunum milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar var rofið í gær um kl. 17:30. Göngin eru 3,7 kílómetrar. Göngin milli Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar verða 6,9 kílómetrar að lengd. Þar er búið að grafa hátt í 3 kílómetra. Steingrímur hjá www.sksiglo.is var auðvitað á staðnum og tók nokkarar myndir sem skoða má hér. http://sksiglo.is/gallery/hedinsfjardargong/fostudagur_21._mars_2008/
Lesa meira

Starf flokksstjóra

Fjallabyggð auglýsir laus til umsóknar störf flokksstjóra í vinnuskóla Fjallabyggðar (Siglufirði og Ólafsfirði) sumarið 2008.
Lesa meira

Áætlað að útsendingar N4 náist í Fjallabyggð í júní nk.

N4 Sjónvarp Norðurlands hóf útsendingar á landsvísu þann 12. mars. N4 verður á dreifikerfi Digital Ísland á rás 15 og verður fyrsta sjónvarpsstöðin á landsbyggðinni til að hefja útsendingar á landsvísu. Eins og íbúar Fjallabyggðar vita náum við hér í Fjallabyggð takmörkuðum fjölda rása Digital Íslands og munum við því ekki ná útsendingum N4 enn um sinn að minnsta kosti.
Lesa meira

Myndir

Þórir Kr. Þórisson bæjarstjóri fór um Siglufjörð um helgina og tók fjölda mynda. Stór hluti af þeim myndum er af skíðasvæðinu. Sjá hér: http://picasaweb.google.com/siglufjordur01/SkAsvISiglufirIOFl
Lesa meira

Nýr snjótroðari tekinn í notkun í Skarðsdal

Í dag bættist heldur betur við vélakost skíðasvæðisins í Skarðsdal á Siglufirði. Troðari að gerðinni PistenBully 300W var tekinn í notkun. Troðarinn kemur á mjög heppilegum tíma þar sem mikið hefur snjóað síðustu daga og páskarnir framundan.
Lesa meira

Verðlaun í stuttmyndasamkeppni

Árný Ósk Árnadóttir fyrrverandi nemandi Grunnskóla Ólafsfjarðar vann nýverið til verðlauna í stuttmyndasamkeppni meðal nemenda í Menntaskólanum á Akureyri. Árný keppti ásamt tveimur bekkjarfélögum sínum í fjölmiðlafræði MA með myndina „Eru draugar í Menntaskólanum á Akureyri“.  Myndin var sýnd síðast þriðjudag í heild sinni í þættinum Að norðan á sjónvarpsstöðinni N4. Á heimasíðu N4 er hægt að horfa á þáttinn í vefsjónvarpi. http://n4.is/video/one/?id=12
Lesa meira

Sýning á “Tveggja Þjónn” fellur niður

Sýning á “Tveggja Þjónn” sem vera átti í kvöld kl. 20:30 fellur niður vegna veikinda.
Lesa meira

Nefnd skilar tillögum um endurskoðun Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

Nefnd sú, sem falið var að endurskoða III. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 með síðari breytingum, er fjallar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, hefur skilað tillögum sínum til samgönguráðherra.
Lesa meira

Næsti umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er 1. apríl 2008.

Menntamálaráðuneytið auglýsir  styrki úr Æskulýðssjóði sem starfar samkvæmt æskulýðslögum nr. 70/2007 og reglum um Æskulýðssjóð nr. 60/2008.
Lesa meira