Fréttir

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir myndlistarmaður hefur hlotið nafnbótina Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2022

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar hefur samþykkt á fundi sínum þriðjudaginn 9. nóvember 2021 að útnefna Aðalheiði S. Eysteinsdóttur sem Bæjarlistamann Fjallabyggðar 2022.
Lesa meira

Varðskipið Freyja komið heim

Laugardaginn 6. nóvember lagðist að bryggju á Siglufirði varðskipið Freyja eftir fimm daga siglingu frá Rotterdam. Mikið fjölmenni lagði leið sína á Hafnarbryggjuna til að fagna komu skipsins til heimahafnar á Siglufirði. Freyja kom í fylgd varðskipsins Týs, þyrlu Landhelgisgæslunnar og björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Að auki keyrðu viðbragðsaðilar á Norðurlandi í samfloti frá Strákagöngum skipinu til heiðurs auk þess sem séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar skaut þremur heiðursskotum úr fallbyssu þegar skipið kom siglandi inn fjörðinn.
Lesa meira

Viðburðadagatal á aðventu í Fjallabyggð 2021-2022

Undanfarin ár hefur viðburðadagatal verið gefið út á vegum bæjarins þar sem tíunduð er dagskrá flestra þjónustuaðila, kirkjunnar, félaga, safna, skóla, tónleikar, jólamarkaðir, miðbæjarstemning og fleira sem fylgir því að njóta töfra aðventunnar.
Lesa meira

Baráttudagur gegn einelti

Í gær þann 8. nóvember, var alþjóðlegur dagur gegn einelti og tóku nemendur Grunnskóla Fjallabyggðar þátt í skemmtilegri dagskrá af því tilefni. Nemendum var skipt í hópa þvert á bekki á sitt hvorri starfsstöðinni og unnu ýmis verkefni tengd vinnu gegn einelti. Nemendur bjuggu til vinabönd, veggspjöld, spiluðu og dönsuðu.
Lesa meira

206. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar

206. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Menningarhúsinu Tjarnarborg, Aðalgötu 13, Ólafsfirði, 10. nóvember 2021 kl. 17.00
Lesa meira

Jólagjöf til starfsmanna Fjallabyggðar - Gjafabréf

Fjallabyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Fjallabyggð sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins.
Lesa meira

Varðskipið Freyja kemur til heimahafnar á Siglufirði þann 6. nóvember

Fjallabyggð og Landhelgisgæsla Íslands bjóða til hátíðar á hafnarbryggjunni á Siglufirði næstkomandi laugardag 6. nóvember í tilefni þess að varðskipið Freyja kemur til landsins í fyrsta sinn. Skipið leggst að bryggju klukkan 13:30 í fylgd tveggja þyrla Landhelgisgæslunnar, varðskipsins Týs og björgunarskipsins Sigurvins frá Siglufirði.
Lesa meira

Fjallabyggð leitar að áhugasömum einstaklingum í samráðsvettvang Sóknaráætlunar Norðurlands eystra 2020-2024

Fjallabyggð óskar eftir áhugasömum einstakingum til að fylla tvö sæti "ópólitískra" fulltrúa í samráðsvettvangi Sóknaráæltunar Norðurlands eystra 2020-2024. Óskað er eftir karli og konu. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Fjallabyggðar í gegnum netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is
Lesa meira

Fjallabyggð auglýsir eftir tilnefningum um bæjarlistamann Fjallabyggðar. Frestur framlengdur til 5. nóvember

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar auglýsir eftir tilnefningum um hver hljóta skuli nafnbótina Bæjarlistamaður Fjallabyggðar árið 2022. Aðeins þeir listamenn sem búsettir hafa verið í Fjallabyggð að minnsta kosti um tveggja ára skeið koma til greina. Nafnbótin getur hvort sem er hlotnast einstaklingum eða hópi. Auk nafnbótarinnar er bæjarlistamanni veittur menningarstyrkur og verður útnefning að vanda tilkynnt í janúar 2022.
Lesa meira

Syndum, landsátak í sundi 1. – 28. nóvember

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. til 28. nóvember 2021. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess.
Lesa meira