Varðskipið Freyja kemur til heimahafnar á Siglufirði þann 6. nóvember

Varðskipið Freyja
Varðskipið Freyja

Fjallabyggð og Landhelgisgæsla Íslands bjóða til hátíðar á Hafnarbryggjunni á Siglufirði næstkomandi laugardag, 6. nóvember í tilefni þess að varðskipið Freyja kemur til landsins í fyrsta sinn. Skipið leggst að bryggju klukkan 13:30 í fylgd tveggja þyrla Landhelgisgæslunnar, varðskipsins Týs og björgunarskipsins Sigurvins frá Siglufirði.

Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson flytur ávarp við komu skipsins.

Gestum og gangandi býðst að skoða varðskipið Freyju milli klukkan 13:30 og 16:00.

Allir eru boðnir hjartanlega velkomnir.