Fjallabyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Fjallabyggð sem hafa áhuga á að vera með í að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins.
Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Fjallabyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Fjallabyggðar gegn framvísun gjafabréfsins. Mælst verður til þess að handhafar gjafabréfa noti þau á tímabilinu 1. desember 2021 til og með 20. janúar 2022 en þau falla þó ekki úr gildi á árinu.
Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að viðkomandi sé með starfsemi í Fjallabyggð. Skráningarfrestur er til og með 24. nóvember.
Tekið er við skráningu hér fyrir neðan. Einnig er hægt að senda póst á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Sif Guðbrandsdóttir í síma 464-9100
Skráning í gjafabréf