Fréttir

Foreldrafundir Grunnskóla Fjallabyggðar

Kynningarfundir fyrir foreldra um skipulag nýja skólans sem til stóð að halda 24. og 25. ágúst verða færðir til. Fundur fyrir foreldra nemenda í 1.-10. bekk Ólafsfirði verður fimmtudaginn 26. ágúst kl. 18 í skólahúsinu við Tjarnarstíg. Fundur fyrir foreldra nemenda í 1.-10. bekk á Siglufirði verður mándaginn 30. ágúst kl. 18 í skólahúsinu við Hlíðarveg. Á fundunum verður farið yfir skipulag starfsstöðva skólans og skólaakstur fyrir nemendur í unglingadeild.
Lesa meira

Opnun íþróttamiðstöðvarinnar í Ólafsfirði

Íþróttamiðstöðin í Ólafsfirði verður opin sem hér segir næstu viku (ath. búið er að opna sundlaug og vaðlaug): Mánudag-fimmtudag: 6:45-11:00 og 16:00-20:00 Föstudag: 6:45-11:00 og 16:00-18:00 Laugardag og sunnudag: 10:00-14:00 Eftir næstu viku er líklegt að vetraropnunartími taki gildi.
Lesa meira

Sundlaugin í Ólafsfirði opnar

Sunnudaginn 22. ágúst mun sundlaugin í Ólafsfirði verða opin frá kl. 10:00 - 13:00. Búið er að koma sundlauginni og vaðlauginni í gagnið. Enn er verið að vinna við framkvæmdir á svæðinu og verður því ekki full opnun í næstu viku. Opnun næstu viku verður auglýst nánar á morgun, en búast má við að hún verði opnuð á morgnana og svo aftur um miðjan dag.
Lesa meira

Héðinsfjarðargöng á skólasetningu

Upplýsingar frá skólameistara Menntaskólans á Tröllaskaga
Lesa meira

Skólaakstur í fyrir framhaldsskólanema

Fjallabyggð hyggst hefja skólaakstur/áætlunarferðir á milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar 1. september n.k. Búið er að bjóða aksturinn út og verið er að skoða þau tilboð sem bárust.
Lesa meira

Fugl fyrir milljón - Ljósmyndasamkeppni á Tröllaskaga

Vakin er athygli á ljósmyndasamkeppninni "Fugl fyrir milljón", sem Brimnes hótel í Ólafsfirði stendur fyrir. Efnt er til samkeppninnar í fyrsta sinn nú í ár, en hún verður endurtekin á næsta ári.
Lesa meira

Skólasetning Menntaskólans á Tröllaskaga

Boðað er til setningarathafnar n.k. laugardag kl. 14:00
Lesa meira

Sundlaugin í Ólafsfirði

Eins og bæjarbúar hafa væntanlega tekið eftir þá hafa framkæmdir staðið yfir við sundlaugina í Ólafsfirði í sumar. Um helgina var látið renna í laugarkerið og átti að taka sundlaugina í notkun í þessari viku. Í ljós kom leki þegar kerfið var prófað um helgina og er verið að vinna í að laga hann. Er því ljóst að sundlaugin opnar ekki fyrr en í fyrsta lagi í kringum næstu helgi, þar sem tíma tekur að finna lekann og renna aftur í sundlaugina. Þegar lekinn hefur verið lagaður og laugin opnuð verður það auglýst hér á síðunni og í staðarblöðum.
Lesa meira

Ný heimasíða Grunnskóla Fjallabyggðar

Grunnskóli Fjallabyggðar hefur formlega opnað nýja heimasíðu. En eins og fram hefur komið hér eru Grunnskóli Siglufjarðar og Grunnskóli Ólafsfjarðar nú sameinaður í einn skóla. Á næstu dögum munu koma þar inn frekari upplýsingar fyrir foreldra skólabarna. Nú þegar eru komnir innkaupalistar fyrir flesta bekki og skóladagatal. Áætlað er að skólinn byrji 1. september nk. Slóðin þangað er: http://grunnskoli.fjallabyggd.is
Lesa meira

Ábending til íbúa í Ólafsfirði

Um miðjan ágúst verður dælubíll frá Holræsahreinsun í Ólafsfirði, þeir sem þurfa á því að halda að láta hreinsa úr niðurföllum á bílaplönum og lóðum geta haft samband við Baldur Jónsson í síma 892 1815 vegna þessa.
Lesa meira