Hreyfing, heilsuefling, tómstunda- og íþróttastarf eldra fólks

Vetrardagskrá tómstunda- og íþróttastarfs eldri borgara

Tómstunda- og íþróttastarf fyrir eldri borgara fer fram á virkum dögum frá kl. 9:00-15:30.

Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá, tómstundaiðju, samveru, holla næringu og fjölbreytta hreyfingu með það að markmið að viðhalda eða efla almenna heilsu og félagslega virkni. 

Á Siglufirði fer starfið fram í Skálarhlíð og í íþróttamiðstöð þar sem boðið er upp á lokaða tíma í rækt, boccia og vatnsleikfimi.

Í Ólafsfirði verður starfsemi í Hornbrekku og er dagskrá í boði fimm virka daga.

Eftir sem áður verður íþróttastarf; lokaðir tímar í rækt, stólaleikfimi, boccia, ganga og vatnsleikfimi í íþróttamiðstöðinni í Ólafsfirði.

 Akstursþjónuta er í boði samkvæmt mati félagsþjónustu.

Starfsmenn í tómstunda- og íþróttastarfi eru starfsmenn félagsþjónustu Fjallabyggðar og Hornbrekku:

Helga Hermannsdóttir forstöðumaður félagsstarfs, Skálarhlíð
Berglind Gylfadóttir starfsmaður félagsstarfs, Skálarhlíð
Ásdís E. Baldvinsdóttir starfsmaður félagsstarfs, Skálarhlíð
María B Leifsdóttir íþróttafræðingur
Sylvía Halldórsdóttir iðjuþjálfi, Hornbrekku
Gerður Ellertsdóttir félagsliði, Hornbrekku
Guðrún Árnadóttir starfsmaður félagsstarfs Hornbrekku
Anna Hulda Júlíusdóttir starfsmaður félagsstarfs Hornbrekku

Skálarhlíð – Vetrardagskrá. Gildir frá 4. september 2023   

Nánari upplýsingar hjá Helgu Hermannsdóttur forstöðumanni félagsstarfs í síma 898-1147

Ath. greitt er fyrir bingóspjald, morgunmat, hádegismat og kaffi samkvæmt gjaldskrá félagsþjónustu Fjallabyggðar.

 Mánudagur

9:00 Morgunmatur
10:00-11:00 Boccia (íþróttamiðstöð, lokaður tími). Helga Hermanns og Berglind Gylfadóttir
12:00-13:00 Hádegismatur
13:00-15:30 Félagsvist. Helga Hermannsdóttir
14:30 Kaffi

Þriðjudagur

9:00 Morgunmatur
10:30 Leikfimi (salur Skálarhlíð) Helga Hermannsdóttir
11:00 Vax. Helga Hermannsdóttir og Berglind Gylfadóttir
12:00-13:00 Hádegismatur
13:00-15:30 Handavinna (handavinnustofa) Ásdís E. Baldvinsdóttir
13:00-15:30 Spil/samvera (salur Skálarhlíð) Útiganga. Helga Hermannsdóttir og Berglind Gylfadóttir
14:30 Kaffi
15:00-16:00 Vatnsleikfimi (íþróttamiðstöð, lokaður tími). María B. Leifsdóttir

Miðvikudagur

9:00 Morgunmatur
10:30 Myndasýning. Starfsmenn Síldarminjasafns
12:00-13:00 Hádegismatur
13:30 – 14:30 Bingó. Helga Hermannsdóttir og Berglind Gylfadóttir (spjaldið kostar 300 kr.)
14:30 Kaffi 

Fimmtudagur

9:00 Morgunmatur
10:30 Leikfimi (salur Skálarhlíð) Helga Hermannsdóttir
11:00 Vax. Helga Hermannsdóttir og Berglind Gylfadóttir
12:00-13:00 Hádegismatur
13:00-15:30 Handavinna (handavinnustofa) Ásdís E. Baldvinsdóttir
13:00-15:30 Spil/samvera (salur Skálarhlíð) Útiganga. Helga Hermannsdóttir og Berglind Gylfadóttir
14:30 Kaffi
14:00-14:50 Tækjasalur (íþróttamiðstöð, lokaður tími) María B. Leifsdóttir
15:00-16:00 Vatnsleikfimi (íþróttamiðstöð, lokaður tími) María B. Leifsdóttir

Föstudagur

9:00 Morgunmatur
10:00-11:00 Boccia (íþróttamiðstöð, lokaðir tímar) Helga Hermannsdóttir og Berglind Gylfadóttir
12:00-13:00 Hádegismatur
13:00-14:30 Bæjarferð
14:30 Kaffi

Hornbrekka – Vetrardagskrá.  Gildir frá 12. september 2023

Nánari upplýsingar hjá Sylvíu Halldórsdóttur í síma 773-6998 og hjá

Gerði Ellertsdóttur í síma 864-4887

Ath. greitt er fyrir bingóspjald, morgunmat, hádegismat og kaffi samkvæmt gjaldskrá félagsþjónustu Fjallabyggðar.

Mánudagur

9:00 Morgunmatur
9:45 Stólaleikfimi (15-20 mín). Sylvía Halldórsdóttir / Anna Hulda Júlíusdóttir
11:00-12:00 Lestur. Sylvía Halldórsdóttir / Anna Hulda Júlíusdóttir
12:00-13:00 Hádegismatur
13:00-15:00 spil.  Sylvía Halldórsdóttir / Anna Hulda Júlíusdóttir
15:00 Kaffi

Þriðjudagur

9:00 Morgunmatur
9:30-10:30 Tækjasalur (íþróttamiðstöð, lokaður tími). María B. Leifsdóttir
10:30 Stólajóga og slökun (íþróttamiðstöð, lokaður tími). Gerður Ellertsdóttir
11:15-11:50 Boccia/krulla/ganga og fl. (Íþróttamiðstöð, lokaður tími). Gerður og María
11:00-12:00 Lestur. Sylvía Halldórsdóttir / Anna Hulda Júlíusdóttir
12:00-12:45 Hádegismatur
12:45 Stólaleikfimi  (15-20 mín). María B. Leifsdóttir.
13:00-15:00 Handavinna og vax (handavinnustofa). Guðrún Árnadóttir og Gerður Ellertsdóttir
15:00 Kaffi

 Miðvikudagur

9:00 morgunmatur
9:45 Stólaleikfimi (15-20 mín). Sylvía Halldórsdóttir / Anna Hulda Júlíusdóttir
11:00-12:00 Vatnsleikfimi (íþróttamiðstöð, lokaður tími). María B. Leifsdóttir
11:00-12:00 lestur /bæna og kyrrðarstund (endar á slökun). Anna Hulda Júlíusdóttir
12:00-13:00 Hádegismatur
14:00-15:00 Boccia (matsalur 2. hæð). Sylvía Halldórsdóttir / Anna Hulda Júlíusdóttir
15:00 Kaffi

Fimmtudagur

9:00 Morgunmatur
10:00 Stólajóga og slökun (íþróttamiðstöð, lokaður tími). Gerður Ellertsdóttir
11:15-11:50 Boccia/krulla/ganga og fl. (Íþróttamiðstöð, lokaður tími). Gerður Ellertsdóttir og María B. Leifsdóttir
11:00-12:00 Lestur. Sylvía Halldórsdóttir / Anna Hulda Júlíusdóttir
12:00-12:45 Hádegismatur
12:45 Stólaleikfimi (15-20 mín). María B. Leifsdóttir
13:00-15:00 Handavinna, vax og lestur. Guðrún Árnadóttir og Gerður Ellertsdóttir
15:00 Kaffi

Föstudagur

9:00 Morgunmatur
9:45 Stólaleikfimi (15-20 mín). Sylvía Halldórsdóttir / Anna Hulda Júlíusdóttir
10:00 – 11/12 Breytileg dagskrá. Gerður Ellertsdóttir og Sylvía Halldórsdóttir
11:00-12:00 Lestur og föstudagssprell. Gerður Ellertsdóttir og Sylvía Halldórsdóttir
11:00-12:00 Vatnsleikfimi (Íþróttamiðstöð, lokaður tími). María B. Leifsdóttir
12:00-13:00 Hádegismatur
13:00-15:00 Bingó Gerður Ellertsdóttir og Sylvía Halldórsdóttir (spjaldið kostar 300 kr.).
15:00 Kaffi

Dagdvöl aldraðra

Dagdvöl aldraðra er starfrækt í Skálarhlíð á Siglufirði og á Hornbrekku á Ólafsfirði.

Dagdvöl er stuðningsúrræði við þá sem að staðaldri þurfa eftirlit og umsjá til að geta búið áfram heima. Í dagdvöl aldraðra er veitt hjúkrunarþjónusta og aðstaða til þjálfunar og læknisþjónustu. Boðið er upp á flutningsþjónustu að og frá heimili einstaklingsins, þjálfun, tómstundaiðju, félagslegan stuðning, fræðslu, ráðgjöf og aðstoð við athafnir daglegs lífs.

Í tengslum við dagdvöl er einnig starfrækt félagsstarf fyrir aldraða þar sem boðið er upp á félagsskap, næringu, hreyfingu, tómstundaiðju og skemmtun.

Greitt er fyrir þjónustu samkvæmt gjaldskrá.

Nánari upplýsingar veita:
Helga Hermannsdóttir, Skálarhlíð, í síma 467-1147 og 898-1147
Birna Sigurveig Björnsdóttir, Hjúkrunarforstjóri og forstöðumaður Hornbrekku, í síma 466-4060 og 663-5299

Hátindur 60+

Á heimasíðu Hátinds 60+ er einnig að finna upplýsingar um afþreyingu og félagsstarf 60 ára og eldri.  Verið velkomin að kíkja við þar með því að klikka á myndina hér fyrir neðan.

Viðburðir

Engir viðburðir á næstunni

Fréttir

Hátindur 60+ hlýtur styrk úr Fléttunni í ár

Fyrirtækið Memaxi, Hátindur 60+ og HSN-Fjallabyggð sóttu um styrk fyrir verkefnið: Skjáheimsóknir í dreifbýli sem framtíðarlausn í öldrunarþjónustu og hlaut verkefnið 7.500.000 kr. stryk. 
Lesa meira

Velferðartæknimessa í Fjallabyggð 18. september 2024

Velferðartæknimessa fer fram þann 18. september kl: 12:00 í Tjarnarborg Ólafsfirði. Kynningar á snjall- og velferðartæknilausnum sem auðvelda sjálfstæða búsetu í heimahúsi sem og lausnir sem nýtast stofnunum og stærri skipulagsheildum. Frábært tækifæri til að kynnast lausnum sem auðvelda lífið.
Lesa meira

Fjölsótt Aðventustund félaga eldri borgara í Bátahúsinu

Félögum eldri borgara í Fjallabyggð var boðið til Aðventustundar í Bátahúsi Síldarminjasafnsins mánudaginn 11. desember sl.
Lesa meira

Skógarböðin bjóða félögum eldri borgara Fjallabyggðar frítt í böðin

Skógarböðin bjóða félögum eldri borgara Fjallabyggðar frítt í böðin þriðjudaginn 12. desember milli kl. 10:00 og 14:00
Lesa meira

Formleg opnun verkefnisins Hátindur 60+

Formleg opnun verkefnisins Hátindur 60+ Menningarhúsinu Tjarnarborg Ólafsfirði, miðvikudaginn 29. mars nk. kl. 12:00
Lesa meira