02.06.2020
Laugardaginn 30. maí sl. opnaði í Pálshúsi Ólafsfirði sýning Árna Rúnars Sverrissonar “ Ferðasaga”. Sýningin verður opin á opnunartíma Pálshúss til 26. júlí.
Árni Rúnar Sverrisson (f. 1957) lærði myndlist í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Mynlistarskóla Reykjavíkur og hefur sýnt mikið frá því hann hélt sína fyrstu einkasýningu á Mokka 1989. Árið 1999 dvaldi hann á Sikiley þar sem hann starfaði að list sinni en hefur fyrst og fremst unnið og sýnt á Íslandi þar sem hann á að baki á þriðja tug einkasýninga auk þess sem hann hefur tekið þátt í samsýningum og samkeppnu
Lesa meira
02.06.2020
Sunnudaginn 7. júní kl. 13:00 opnar sýning Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur Mynd eftirmynd í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Sýningin stendur til 21. júní og er opin daglega frá l. 14:00-17:00
Lesa meira
30.05.2020
Sumaropnun Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar tekur gildi 2. júní nk. og til 31. ágúst 2020.
Opnunartímar verða sem hér segir:
Lesa meira
29.05.2020
Þann 27. maí sl., var ársreikningur Fjallabyggðar borinn upp og samþykktur á 186. fundi bæjarstjórnar.
Rekstur bæjarsjóðs gekk vel og var betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.
Lesa meira
29.05.2020
Þann 30. maí nk. opnar Pálshús neðri hæðina eftir vetrardvala. Á neðri hæð hússins er m.a. Fuglasýningin “Flugþrá” og sýningin “Ólafsfjarðarvatn”.
Þá opnar Árni Rúnar Sverrisson myndlistasýninguna "Ferðasaga" í sýningarsalnum laugardaginn 30. maí kl. 14:00. Sýningin stendur til 26. júlí nk.
Pálshús verður opið alla daga í sumar frá kl. 13.00-17:00
Lesa meira
26.05.2020
Í fjárhagsáætlun 2020 er áætlað kr. 15.720.000.- á málaflokk opinsvæði 11410 – lykill 1110, laun, auk kr. 3.323.000 í launatengd gjöld, lykill 1890.
Lesa meira
26.05.2020
Fjallabyggð hlaut 2 millj. kr. styrk úr Barnamenningarsjóði.
Himinn og haf – Barnamenningardagar í Fjallabyggð verða haldnir í október þar sem í boði verða m.a. sköpunarsmiðjur, listsmiðjur, skapandi námskeið, fræðsla, framandi matargerð, sýningar og fleira og fleira fyrir börn og ungmenni. Markmiðið er að efla menningarstarf barna, gefa þeim tækifæri óháð stöðu og efnahag til að kynnast flóru menningar og lista í samfélaginu og sem þátttakendur að rækta hæfileika sína til listsköpunar, auk þess að veita þeim hvatningu til skapandi hugsunar og kynna þeim heim og umhverfi menningar í byggðalaginu.
Lesa meira
25.05.2020
Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti 20. maí 2020 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Hvanneyrarbraut 30 á Siglufirði skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagssvæðið markast af lóðamörkum Hvanneyrarbrautar 30, landnr. 142644. Deiliskipulagstillagan felur í sér skilgreiningu á byggingarreit fyrir viðbyggingu og skapa þannig möguleika á stækkun núverandi húss til suðurs.
Lesa meira
25.05.2020
Menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði hefst að nýju í lok maí eftir óhjákvæmilegar lokanir í mars og apríl. Opnað verður inn á sýningar og viðburði í takti við þær takmarkanir um mannamót sem fyrir liggja hverju sinni og gestir beðnir um að sýna tillit með fjarlægðir, handspritt og að snerta ekki neitt innandyra. Einnig að koma ekki á viðburði með einkenni af covid 19.
Lesa meira
25.05.2020
Rafrænt yfirlit yfir sumarnámskeið og frístundastarf barna og unglinga í Fjallabyggð sumarið 2020 er nú aðgengilegt á vef Fjallabyggðar.
Lesa meira