Fréttir

Sundlaugum Fjallabyggðar lokað vegna Covid-19

Hertar takmarkanir á samkomum – mörkin sett við 20 manns. Ákveðið að loka sundlaugum Fjallabyggðar á meðan á samkomubanni stendur. Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar og þar með talið sundlaugar verða því lokaðar frá og með 23. mars. 2020 [Meira]
Lesa meira

Lokun líkamsrækta og íþróttasala Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar

Heilbrigðisráðuneytið, í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið, gaf í gær út leiðbeinandi viðmið um hvernig beri að túlka takmörkun á samkomum og skólastarfi í tengslum við íþrótta- og æskulýðsstarf. Mælst er til þess að hlé verði gert á öllu íþrótta- og æskulýðsstarfi sem felur í sér blöndun hópa, nálægð við aðra og snertingu þar til takmörkun skólastarfs lýkur. [Meira]
Lesa meira

Vikufrétt úr starfi tónlistarskólans

Starfið í Tónlistarskólanum á Tröllaskaga hefur gengið vel þessa viku þrátt fyrir miklar breytingar og skerðingu á kennslu. [Meira]
Lesa meira

Upplýsingapóstur frá bæjarstjóra

Nú líður að lokum fyrstu vikunnar frá því að takmarkanir stjórnvalda á samkomuhaldi og mannsöfnun til að hindra útbreiðslu kórónuveirunnar tóku gildi. Þjónusta stofnana bæjarfélagsins hefur breyst, verið skert að einhverju leyti eða takmörkuð. Engu að síður höfum við náð að halda uppi þjónustustiginu, að því marki sem aðstæður hafa gert mögulegt. [Meira]
Lesa meira

Tilkynning vegna truflana á kaldavatnsrennsli á Siglufirði

Tímabundin truflun er á kaldavatnsrennsli á Siglufirði. Unnið er að viðgerð. Tæknideildin.
Lesa meira

183. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar

183. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í fjarfundi 23. mars 2020 kl. 12.00
Lesa meira

Viðbragðsáætlun Fjallabyggðar við heimsfaraldri

Sem kunnugt er hefur Ríkislögreglustjóri lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna kórónaveiru (COVID-19). Fjallabyggð hefur gefið út viðbragðsáætlun sem er að finna á heimasíðunni undir útgefið efni. Þessi viðbragðsáætlun á að þjóna þeim tilgangi að vera stjórnendum bæjarfélagsins til stuðnings um það hvernig takast eigi á við afleiðingar neyðarástands sem kann að ógna lífi og heilsu almennings, umhverfi og/eða eignum. [Meira]
Lesa meira

Athugið - Tímabundin breyting á opnunartíma Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar

Athugið að tímibundinn breyting verður á opnunartíma Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar frá 16. - 23. mars nk. Vegna aðstæðna í samfélaginu er nauðsynlegt að taka alþrif á líkamsrækt og helstu smitflötum íþróttamiðstöðva alla virka daga milli 13.00-15:00.
Lesa meira

Útvíkkun fyrirmæla um sóttkví frá almannavörnum

Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að útvíkka enn frekar hááhættusvæðin vegna COVID-19. Frá og með fimmtudeginum 19. mars 2020 er öllum Íslendingum sem koma til landsins skylt að fara í tveggja vikna sóttkví án tillits hvaðan þeir eru að koma. [meira]
Lesa meira

Frá bæjarstjóra - Takmörkun á aðgengi að skrifstofu Ráðhúss Fjallabyggðar

Ágætu íbúar, samkvæmt áætlun Fjallabyggðar um órofna starfsemi og þjónustu vegna COVID-19 smithættu verða breytingar á starfsemi og aðgengi að Ráðhúsinu á Siglufirði frá og með þriðjudeginum 17. mars 2020. Skrifstofa sveitarfélagsins verður áfram opin á hefðbundnum tíma, þ.e. alla virka daga, frá kl. 09:30-15:00 en með mjög takmörkuðu aðgengi gesta. Þangað er hægt að hringja á opnunartíma í síma 464 9100 til að fá samband við starfsmenn Ráðhússins. Einnig er hægt að senda tölvupóst á fjallabyggd@fjallabyggd.is. Starfsfólk í afgreiðslu mun leiðbeina og leitast við að leysa úr þeim málum sem um er að ræða í hverju tilviki. [Meira]
Lesa meira