09.03.2020
Bæjarstjórn Fjallabyggðar
182. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Tjarnarborg, Aðalgötu 13, Ólafsfirði 11. mars 2020 kl. 17:00
Lesa meira
09.03.2020
Fjallabyggð boðar til fundar með öllum sem áhuga hafa á uppbyggingu ferðamannastaða í Fjallabyggð.
Fundurinn verður haldinn í Tjarnarborg 19. mars 2020 og hefst kl. 17:00 og er opinn öllum sem láta sér málefnið varða.
Lesa meira
09.03.2020
Samninganefnd BSRB gagnvart Sambandi íslenskra sveitararfélaga, fyrir hönd 14 aðildarfélaga BSRB, skrifaði rétt eftir miðnætti undir nýjan kjarasamning við samninganefnd Sambandsins með fyrirvara um samþykki félagsmanna. Samningurinn nær til 7000 félagsmanna sem starfa hjá sveitarfélögunum og gildir frá 1. apríl 2019 til 31. mars 2023.
Boðum verkföllum sem áttu að hefjast á miðnætti hefur fyrir vikið verið aflýst.
Lesa meira
06.03.2020
Hjá Fjallabyggð eru starfsmenn í tveimur stéttarfélögum innan BSRB eða Starfsmannafélagi Fjallabyggðar og Kili, Stéttarfélagi starfsmanna í almannaþjónustu. Alls stóðu 17 aðildarfélög BSRB fyrir atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun sem stóð frá 17. - 19. febrúar og samþykktu félagsmenn í 15 þeirra að boða til aðgerða dagana 9. og 10. mars, 17. og 18. mars, 24. og 26. mars og 31. mars og 1. apríl hafi samningar ekki náðst.
Lesa meira
05.03.2020
Árshátíð starfsmanna Fjallabyggðar hefur verið frestað um óákveðin tíma.
Lesa meira
04.03.2020
Laugardaginn 7. mars kl. 15.00 opnar Hulda Hákon sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Á þessari sýningu eru lítil málverk, lágmynd og texti sem tengjast sögum bátsmannsins.
Lesa meira
03.03.2020
Leiðbeiningar vegna COVID-2019 kórónaveirunnar og fjarveru starfsmanna,
Samband íslenskra sveitarfélaga vekur athygli á eftirfarandi er varðar leiðbeiningar vegna COVID-2019 kórónaveirunnar og fjarveru starfsmanna.
Fjármálaráðuneytið hefur gefið út leiðbeiningar til stjórnenda vegna COVID-2019 kórónaveirunnar og fjarvista starfsmanna. Þar er farið yfir nokkur mikilvæg atriði varðandi kórónaveirunnar og leiðbeiningar um viðbrögð ef starfsfólk fer í sóttkví eða smitast.
Samband íslenskra sveitarfélaga tekur undir þær leiðbeiningar sem ríkið setur fram varðandi fjarvistadaga og launalega meðhöndlun þeirra. Hér að neðan hafa leiðbeiningar til launagreiðenda vegna COVID-2019 veirunnar, verið settar fram á einfaldan hátt sveitarfélögum til hægðarauka.
Lesa meira
02.03.2020
Skíðafélag Ólafsfjarðar býður upp á skíðagöngunámskeið dagana 3.-5. mars nk. kl. 18:00
Eftirspurn eftir námskeiðum fyrir fullorðna í skíðagöngu hefur stóraukist síðustu misseri og mun Skíðafélag Ólafsfjarðar bjóða áhugasömum tækifæri til að læra á gönguskíði.
Námskeiðið hentar byrjendum sem lengra komnum. Farið verður í undirstöðu atriði fyrir byrjendur, staða, rennsli, detta, bremsa o.fl. Fyrir lengra komna verður farið í tækni, þyngdarflutning, brekkur o.fl.
Lesa meira
28.02.2020
Elías Pétursson hefur verið ráðinn bæjarstjóri Fjallabyggðar.
Elías hefur síðustu tæp sex ár, starfað sem sveitarstjóri Langanesbyggðar. Þar á undan var hann sjálfstætt starfandi ráðgjafi, meðal annars hjá Mosfellsbæ. Hann er fæddur á Þórshöfn 1965.
Elías mun hefja störf hjá Fjallabyggð þann 9. mars næstkomandi.
Lesa meira
27.02.2020
Vegna uppfærslu á fjárhagskerfi hjá Fjallabyggð verða reikningar vegna leikskólagjalda og húsaleigu fyrir mars mánuð sendir út eftir helgina.
Beðist er velvirðingar á þessum töfum.
Lesa meira