Góðgerðarvika NEON

Nú líður að hinni árlegu ferð félagsmiðstöðvarinnar Neons á Samfestinginn og Söngkeppni Samfés sem haldin er í Laugardalshöll í Reykjavík helgina 20.-22. mars. Ferðin er nýtt til allskonar hópeflis fyrir unglingana. Farið hefur verið í bíó, skemmtigarð o.s.frv.

Unglingar í Neon munu ganga í hús og óska eftir stuðningi bæjarbúa til ferðarinnar dagana 11.-13. mars nk. Á móti vilja unglingar rétta íbúum hjálparhönd og fyrirhuguð er Góðgerðarvika 4.-11. mars.

Í Góðgerðaviku gera unglingarnir í Neon góðverk og kemur ýmislegt til greina s.s. setja í poka og bera vörur úr búðunum, taka þátt í félagsstarfi eldri borgara, þvo glugga, týna rusl, fara út með hundinn o.s.frv.

Fyrirtæki sem þiggja góðverk eru hvött til að styrkja unglingana til ferðarinnar en það er þó alls ekki skilyrði.

Allur stuðningur vel þeginn.

Þau fyrirtæki eða einstaklingar sem vilja þiggja góðverk hafi samband við Karen Sif umsjónarmann Neons á netfangið karensifroberts@gmail.com sími 869-6866


Fyrstur hringir/sendir – fyrstur fær
Með fyrirfram þökk fyrir stuðninginn

Félagsmiðstöðin Neon