Fréttir

Sundlaugin á Siglufirði verður lokuð föstudaginn 13. apríl til kl. 12:00

Föstudagur 13. apríl 2018 SUNDLAUGIN Á SIGLUFIRÐI VERÐUR LOKUÐ til kl. 12.00 föstudaginn 13. apríl nk., vegna viðgerðar á hitaveitu. Hægt verður að fara í líkamsræktarsalinn en ekki hægt að fara í sturtu.
Lesa meira

Vetrarleikar UÍF Ólafsfirði

Árlegir Vetrarleikar UÍF verða haldnir 14. og 15. apríl nk. í Ólafsfirði. Sem fyrr munu íþrótta- og ungmennafélögin í Fjallabyggð bjóða upp á fjölbreytta hreyfingu og viðburði þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Lesa meira

Heimsóknir í upplýsingamiðstöðvar Fjallabyggðar 2017

Alls komu 4.240 ferðamenn í Upplýsingamiðstöðvar Fjallabyggðar á árinu 2017. Þar af komu 3.805 ferðamenn á Upplýsingamiðstöðina á Siglufirði og er það ríflega 73% aukning frá árinu 2016. 435 ferðamenn komu á Upplýsingamiðstöðina í Ólafsfirði og er það ríflega 39% aukning frá árinu 2016. Sjá má að ferðamannastraumur til Fjallabyggðar hefur samkvæmt þessu aukist gífurlega.
Lesa meira

Vetrarleikar UÍF

Árlegir Vetrarleikar UÍF verða haldnir 7. og 8. apríl nk. Sem fyrr munu íþrótta- og ungmennafélögin í Fjallabyggð bjóða upp á fjölbreytta hreyfingu og viðburði þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Lesa meira

Endurgerð skólalóða Grunnskóla Fjallabyggðar

Í sumar verður ráðist í 1. áfanga endurgerðar á skólalóð Grunnskóla Fjallabyggðar í Ólafsfirði. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig endurgerð skólalóðarinnar er skipt í þrjá áfanga. Í fyrsta áfanga, sem afmarkaður er með appelsínugulri punktalínu á myndinni er áætlað að endurgera svæðið næst skólahúsinu að framan og norðan að íþróttahúsi. Áfangi 2 er merktur með gulri punktalínu og síðasti áfanginn, áfangi 3 með rauðri.
Lesa meira

Arctic Coast Way - Norðurstrandarleið

Taktu þátt í þróun á upplifunum í apríl með Blue Sail! Í apríl verða haldnar vinnustofur með breska ráðgjafafyrirtækinu Blue Sail. Skráning fer fram á heimasíðu MN og hefst þriðjudaginn 27. mars. Við viljum þróa það besta sem völ er á þegar kemur að upplifun ferðamanna, þar á meðal þeim sem tengjast mat og matargerð.
Lesa meira

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna íbúakosningar um Fræðslustefnu Fjallabyggðar

Laugardaginn 31. mars 2018 kl. 13:00 – 16:00 verður hægt að kjósa á 2. hæð í Ráðhúsinu á Siglufirði og Bókasafninu á Ólafsvegi 4, Ólafsfirði. Frá og með 3. apríl verður hægt að kjósa utan kjörfundar í bókasöfnunum á eftirfarandi tíma, Bókasafnið Siglufirði virka daga frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 17:00. Bókasafnið Ólafsfirði virka daga frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 17:00.
Lesa meira

Samanburður á kennsluskipulagi fyrir og eftir nýja fræðslustefnu 2017

Samanburður á kennsluskipulagi fyrir og eftir nýja fræðslustefnu 2017
Lesa meira

Ný fræðslustefna - Hvað er Frístund?

Frístund er samstarfsverkefni grunnskólans, íþróttafélaga í Fjallabyggð og Tónlistarskólans á Tröllaskaga.
Lesa meira

Kynningarfundur um tillögu að deiliskipulagi malarvallarins

Kynningarfundur vegna tillögu að deiliskipulagi malarvallarins og breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028, verður haldinn í bæjarstjórnarsal Ráðhúss Fjallabyggðar á Siglufirði þriðjudaginn 3. apríl kl. 17:00.
Lesa meira