Fréttir

Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs lögð fram til kynningar

Undanfarna mánuði hefur sérstök verkefnisstjórn unnið að gerð sameiginlegrar svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi fyrir tímabilið 2015-2026. Tillaga að svæðisáætluninni ásamt umhverfisskýrslu hefur nú verið lögð fram og er hún aðgengileg á skrifstofum hlutaðeigandi sveitarfélaga og á heimasíðu Flokkun Eyjafjörður ehf., http://www.flokkun.is. Öllum er frjálst að gera athugasemdir við tillöguna og umhverfisáhrif hennar. Athugasemdir skulu vera skriflegar og þurfa þær að berast til Ólafar Hörpu Jósefsdóttur, formanns verkefnisstjórnar, Geislagötu 9, 600 Akureyri, eða á netfangið flokkun@flokkun.is í síðasta lagi föstudaginn 3. júlí 2015.
Lesa meira

Gömlu dansarnir (55+)

Gömlu dansarnir (55+) Verða í Menningarhúsinu Tjarnarborg fimmtudaginn 21. maí kl. 17:00 til 19:00
Lesa meira

Dagur góðra verka - Opið hús í Iðju

Föstudaginn 22. maí milli kl. 09:00 - 16:00 verður opið hús í Iðju, Aðalgötu 7, Siglufirði. Boðið verður upp á kaffi og konfekt og að sjálfsögðu verður handverk til sölu.
Lesa meira

Sóknaráætlun Norðurlands eystra. Kynningarfundur í Tjarnarborg

Undirbúningur er hafinn að stefnumótun fyrir Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2015-2019, í samræmi við samning milli ríkisins og Eyþings. Ákveðið hefur verið að halda fjóra opna svæðafundi til að ræða framtíð svæðanna og landshlutans og safna hugmyndum og forgangsraða þeim.
Lesa meira

Ljósmyndasýning í Alþýðuhúsinu

Sunnudaginn 17. maí kl. 15.00 opnar Jón Steinar Ragnarson ljósmyndasýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Lesa meira

Brúnar tunnur losaðar á föstudag

Á dögunum var gefið út nýtt sorphirðudagatal fyrir Fjallabyggð. Yfirfærslan frá gamla dagatalinu og yfir á það nýja stendur nú yfir og til að koma losun í rétt horf miðað við nýtt dagatal þá verður lífrænn úrgangur (brún tunna) losaður á föstudaginn og klárað á mánudag.
Lesa meira

Auglýsing um skipulag í Fjallabyggð

Tillaga að breyttu Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028 - breytt landnotkun á Leirutanga ásamt umhverfisskýrslu. Bæjarstjórn Fjallabyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ásamt umhverfisskýrslu.
Lesa meira

Karlakór Fjallabyggðar með söngskemmtanir

Karlakór Fjallabyggðar heldur söngskemmtun í Bergi, Dalvík, fimmtudaginn 14. maí (Uppstigningardag) kl. 20:30.
Lesa meira

Góð heimsókn frá Færeyjum

Í gær voru á ferðinni góðir gestir frá Eidi í Færeyjum sem er vinabær Siglufjarðar. Um var að ræða hóp eldri borgara af sambýli í Eidi ásamt starfsfólki. Hópurinn hefur dvalið á Akureyri frá 6. maí og í gær skruppu þau dagsferð til Siglufjarðar.
Lesa meira

Námskeið fyrir byggingamenn

Námskeiðið er ætlað iðnmeisturum sem starfa sem undirverktakar og/eða einyrkjar í bygginga- og mannvirkjagerð. Markmið þess er að kynna grundvallaratriði gæðakerfa
Lesa meira