Ljósmyndasýning í Alþýðuhúsinu

Mynd eftir Jón Steinar
Mynd eftir Jón Steinar

Sunnudaginn 17. maí kl. 15.00 opnar Jón Steinar Ragnarson ljósmyndasýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

Jón Steinar er leikmyndahönnuður og ástríðu ljósmyndari, fæddur á Ísafirði 1959 og hefur verið búsettur á Siglufirði síðan 2007. Hann var leikmyndahönnuður á myndunum Nói Albínói, Englar Alheimsins og Ikingut, sem hann skrifaði líka handrit að. Af sjónvarpsefni þar sem hann kemur við sögu má nefna þættina Fóstbræður. Einnig hefur Jón Steinar starfað að uppbyggingu og ímyndarsköpun Rauðku ehf í tengslum við ferðamál fyrir Róbert Guðfinnsson. Jón Steinar
Myndirnar sem sýndar verða í Kompunni eru teknar sl. ár á Siglufriði og nágrenni og leitast við að fanga andrúmsloft og fegurð svæðisins á öllum árstíðum. Líkt og Ásmundur Jónsson gerði forðum með pensil og striga að vopni.

Sýningin stendur til 31. maí og er opin daglega kl. 14:00 - 17:00 þegar skilti er úti.  Annars hafið samband við Aðalheiði í síma 865-5091.

Fjallabyggð, Menningarráð Eyþings og Fiskbúð Siglufjarðar styðja við starfsemina í Alþýðuhúsinu.