Auglýsing um skipulag í Fjallabyggð

Tillaga að breyttu Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028 - breytt landnotkun á Leirutanga ásamt umhverfisskýrslu.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ásamt umhverfisskýrslu.

Breytingin felst í að þar sem áður var skilgreint athafnasvæði og íbúðarsvæði verður að hluta opið svæði til sérstakra nota fyrir tjaldsvæði og að hluta óbyggt svæði fyrir griðland fugla. Núverandi athafnalóð fyrir bensínstöð fær landnotkunina verslun og þjónusta og ekki er gert ráð fyrir frekari landfyllingu.


Tillaga að deiliskipulagi Leirutanga á Siglufirði ásamt umhverfisskýrslu.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi Leirutanga á Siglufirði samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og umhverfisskýrslu skv. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

Skipulagssvæðið er 13 ha að stærð og afmarkast af Snorragötu til vesturs, Egilstanga til norðurs og strandlínu til austurs og suðurs. Deiliskipulagstillagan felur í sér að byggja upp nýtt tjaldsvæði í stað núverandi tjaldsvæðis í miðbæ Siglufjarðar. Auk þess sem þar verði gert ráð fyrir athafnalóðum, útivistarsvæði og griðlandi fugla.

-

Tillaga að breyttu aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi ásamt umhverfisskýrslum verða til sýnis á bæjarskrifstofum að Gránugötu 24, Siglufirði frá og með 15. maí nk. til og með 26. júní 2015 auk þess mun tillaga að aðalskipulagsbreytingu hanga uppi hjá Skipulagsstofnun á Laugavegi 166 í Reykjavík. Tillögurnar verða einnig aðgengilegar á heimasíðu Fjallabyggðar, www.fjallabyggd.is.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar til föstudagsins 26. júní 2015. Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast tæknifulltrúa annað hvort í Ráðhús Fjallabyggðar á Gránugötu 24, Siglufirði eða á netfangið iris@fjallabyggd.is.

Bæjarstjóri Fjallabyggðar

Fylgigögn:

- Tillaga að aðalskipulagsbreytingu á Leirutanga
- Tillaga að deiliskipulagi Leirutanga - Greinargerð
- Tillaga að deiliskipulagi Leirutanga - Deiliskipulagsuppdráttur
- Tillaga að deiliskipulagi Leirutanga - Skýringaruppdráttur