Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar
1.Ástand húsa við Aðalgötu 6 og 6b á Siglufirði
2.Umsókn um byggingarleyfi, spennistöð
3.Stöðuleyfi fyrir bráðabirgðaspennistöð
4.Gangbraut við Gránugötu á Siglufirði
5.Umsókn um byggingarleyfi, Snorragata 14
6.Hugmynd um gerð tröllagerðis
7.Umsókn um lóð undir eldsneytisafgreiðslu
8.Umsókn um endurnýjun stöðuleyfis fyrir gám
9.Umsókn um skilti fyrir hjólastólastæði að Hávegi 8 Siglufirði
10.Hornbrekka, ræktarland 19, Ólafsfirði
11.Lóðarleigusamningur, Hólkot 2
12.Rekstraryfirlit júlí 2013
Fundi slitið - kl. 16:30.
Á 157. fundi nefndarinnar var ákveðið að fresta fyrirhuguðum dagsektum á eiganda fasteignarinnar að Aðalgötu 6 vegna þess að fyrirliggjandi var áætlun eigenda um að nauðsynlegum endurbótum yrði lokið fyrir 15. ágúst.
Nú í dag, 18. september, hefur ekkert verið framkvæmt af verkáætluninni sem eigandinn lagði fram.
Því samþykkir nefndin að leggja dagsektir á fasteignina Aðalgata 6 Siglufirði að upphæð kr. 10.000 sem byrja að telja frá og með mánudeginum 23. september næstkomandi.