Fréttir

Alþýðuhúsið á Siglufirði valið á Eyrarrósarlistann 2020

Sex ólík menn­ing­ar­verk­efni á lands­byggðinni hafa verið val­in á Eyr­ar­rós­arlist­ann 2020. Þrjú verkefnanna hljóta formlega tilnefningu til verðlaunanna og eiga þar með möguleika á að hljóta Eyrarrósina 2020.
Lesa meira

Tillögur sveitarfélaga um sérreglur vegna úthlutunar byggðakvóta fiskveiðiársins 2019/2020

Með vísan til 3. gr. reglugerðar nr. 676/2019, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2019/2020 þá eru tillögur sveitastjórna um sérreglur vegna úthlutunar byggðakvóta fiskveiðiársins 2019-2020 birtar á vef ráðuneytisins til kynningar. Frestur til að senda inn athugasemdir til ráðuneytisins á postur@anr.is vegna tillagna sveitarfélaga er 1 vika frá birtingu tillagnanna á vef ráðuneytisins. Að þeim tíma liðnum mun ráðuneytið taka afstöðu til þeirra tillagna sem borist hafa frá sveitarfélögum.
Lesa meira

Opnunartími Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar fram til 31. maí 2020

Að gefnu tilefni er gestum líkamsræktar bent á að opnunartími líkamsræktarinnar í Ólafsfirði er frá kl. 06:30-19:00 alla virka daga og á Siglufirði frá kl. 06:30-19:45 og á föstudögum til kl. 19:00. Opið er í ræktina á opnunartíma sundlauga um helgar.
Lesa meira

Álagningu fasteignagjalda 2020 er lokið

Álagningu fasteignagjalda 2020 er lokið. Allir greiðendur fasteignagjalda til sveitarfélagsins, einstaklingar og lögaðilar, geta nú nálgast álagningarseðla rafrænt í gegnum rafræn Fjallabyggð, á heimasíðu Fjallabyggðar og á island.is. Álagningarseðlar eru sendir á pappírsformi til þeirra greiðenda sem þess óska og eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband í síma 464-9100 eða á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is
Lesa meira

Dansandi Fjallabyggð - Opið dansnámskeið 16. febrúar lærum við samkvæmisdansana

Stýrihópur um Heilsueflandi samfélag býður íbúum Fjallabyggðar á opið dansnámskeið sem haldið verður í Tjarnarborg. Námskeiðið verður 6 sunnudagskvöld kl. 20.00 – 21:30, í fyrsta sinn sunnudaginn 9. febrúar. Danskennari verður Ingunn Hallgrímsdóttir. Þátttaka er endurgjaldslaus
Lesa meira

Sól er yfir Fjallabyggð

Fyrsti sólardagur var í Ólafsfirði laugardaginn 25. janúar. í dag þriðjudaginn 28. janúar verður fyrsti sólardagur á Siglufirði. Sólin hverfur frá miðjum nóvember og sést ekki í rúma tvo mánuði vegna hárra fjalla er umlykja Siglufjörð og Ólafsfjörð.
Lesa meira

Vinningshafar í Vísubotni 2019 úr Grunnskóla Fjallabyggðar

Í tilefni af degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember sl. efndi Menntamálastofnun til vísnasamkeppni grunnskólanema, Vísubotn 2019, í samvinnu við KrakkaRÚV. Í keppninni spreyttu nemendur sig á því að botna fyrriparta sem eru eftir Ragnar Inga Aðalsteinsson. Um var að ræða tvo fyrriparta fyrir hvern aldursflokk á yngsta-, mið- og unglingastigi. Fyrir besta vísubotninn á hverju stigi eru veitt bókaverðlaun og viðurkenningarskjöl.
Lesa meira

Styrkveitingar Fjallabyggðar til fræðslu- og menningarmála, heildarlisti

Fjallabyggð veitir ár hvert félagasamtökum, stofnunum og einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur, forgangsröðun og fjárhagsáætlun bæjarstjórnar. Auglýst er eftir styrkumsóknum að hausti ár hvert og er styrkjum úthlutað í upphafi næst komandi árs. Úthlutaðir styrkir til fræðslu- og menningarmála fyrir árið 2020 nema alls kr. 10.600.000.- Þar af fara kr. 2.700.000.- til einstakra menningartengdra verkefna, kr. 3.250.000.- til hátíðarhalda og kr. 2.750.000.- til reksturs safna og setra. Styrkur til fræðslumála nam kr. 100.000.- og framkvæmdastyrkur til Pálshúss nemur kr. 1.500.000.-
Lesa meira

Úthlutun menningarstyrkja fyrir árið 2020

Fjallabyggð veitir ár hvert menningartengda styrki til félagasamtaka, stofnana og einstaklinga til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur, forgangsröðun og fjárhagsáætlun bæjarstjórnar.
Lesa meira

Í kjölfar óveðurs dagana 10. - 12. desember; söfnun upplýsinga um tjón. Frestur til að senda inn upplýsingar til Fjallabyggðar er fram til 27. janúar nk.

Í kjölfar óveðursins sem gekk yfir dagana 10. – 12. desember sl. fer sveitarfélagið þess á leit við bæði íbúa og fyrirtæki Fjallabyggðar sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni af völdum veðurofsans eða vegna rafmagnsleysisins að senda upplýsingar um það á netfangið fjallabyggð@fjallabyggd.is. Frestur til að skila inn upplýsingum er til og með 27. janúar nk. Umbeðnar upplýsingar verða nýttar í greinargerð til átakshóp fimm ráðuneyta og til að gera viðbragðsáætlun fyrir óveður. Bæjarstjórn.
Lesa meira