10.01.2008
Alls komu 2.900.000 krónur í hlut fyrirtækja og einstaklinga í Fjallabyggð úr sjóðnum „Átak til atvinnusköpunar“, en alls voru til úthlutunar 25.500.000 krónur.
Norlandia í Ólafsfirði, Knollur í Ólafsfirði og Rauðka á Siglufirði fengu hvert í sinn hlut 800.000 krónur og Sigríður Gunnarsdóttir Ólafsfirði fékk í sinn hlut 500.000 krónur.
Lesa meira
09.01.2008
Sigurbjörn Þorgeirsson kylfingur úr Golfklúbbi Ólafsfjarðar var kjörinn íþróttamaður Ólafsfjarðar árið 2007. Sigurbjörn átti mjög gott golfár, það langbesta frá upphafi.
Hann varð norðurlandameistari með Landsliði 35 ára og eldri, íslandsmeistari 35 ára og eldri, meistari meistaranna á lokamóti KB-mótaraðarinnar, í 5. sæti á síðasta KB-Bankamótinu í Vestmannaeyjum og 14. sætið á heildarstigalistanum, íslandsmeistari lögreglumanna og klúbbmeistari GÓ. Það má því sannarlega segja að þetta hafi verið árið hans Sigurbjörns.
Lesa meira
09.01.2008
Þeir sem eiga gamla eða nýja skauta og eru tilbúnir að lána okkur eða gefa, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Gísla Rúnar, íþrótta- og tómstundafulltrúa á bæjarskrifstofu Fjallabyggðar í síma 464-9200 eða 863-4369. Ætlunin er að halda smá kynningu á skautaíþróttinni þannig að sem flestir geti fengið að prófa. Ef vel safnast er möguleiki á að vera með skautaleigu.
Lesa meira
08.01.2008
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita alls 160 milljónum króna til eflingar ferðaþjónustu á þeim svæðum sem verða fyrir aflasamdrætti vegna skerðingar á veiðiheimildum.
Lesa meira
07.01.2008
Fjárhagsáætlun Fjallabyggðar fyrir árið 2008 var samþykkt 18. desember sl. Samkvæmt henni verður rekstrarniðurstaðan jákvæð um 104 milljónir króna þetta árið. Áætlað er að handbært fé verði 366 milljónir í lok árs 2008 sem er 23% af heildartekjum. Áætlaðar eru framkvæmdir fyrir um 244 miljónir á árinu 2008. Ljúka á við stækkun leikskólans í Ólafsfirði. Kaupa á snjótroðara fyrir skíðasvæðið á Siglufirði og halda á áfram framkvæmdum við gatnagerð, vatnsveitu, fráveitu, hafnir, auk viðhalds og uppbyggingu á ýmsum eignum bæjarins.
Lesa meira
03.01.2008
Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir verkefnisstjóra vegna stofnunar framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð. Hægt að skoða auglýsinguna á eftirfarandi slóð. http://www.mbl.is/mm/atvinna/starf.html?adno=621930
Í auglýsingunni kemur m.a. fram að skólinn verði með höfuðstöðvar í Ólafsfirði og að starfsemi hans eigi að mæta sem best þörfum íbúa í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð fyrir menntun á framhaldsskólastigi.
Lesa meira