01.02.2008
Félag leikskólakennara, menntamálaráðuneyti,
Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóli, standa fyrir „degi leikskólans“ þann 6. febrúar, en þann dag
árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.
Lesa meira
29.01.2008
Á fundi bæjarráðs Fjallabyggðar þann 24. janúar sl var tekin ákvörðun um að lækka álögur á bæjarbúa Fjallabyggðar vegna fasteignaskatts um tæplega 6 milljónir króna. Ákveðið var að lækka álagningu fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði úr 0,475% í 0,400%. Auk þess var ákveðið hækka afslátt fyrir aldraða og öryrkja um 5% og hækka tekjuviðmiðun um 3,3%.
Lesa meira
29.01.2008
Umf. Glói sendi 11 keppendur á Stórmót ÍR sem
fór fram í hinni glæsilegu frjálsíþróttahöll í Laugardalnum í Reykjavík dagana
19. og 20. janúar sl. Fjöldi keppenda frá Siglufirði vakti mikla athygli
og ekki síður hinn góði árangur sem okkar fólk náði.
Lesa meira
29.01.2008
Laust
er til umsóknar 60% starf við heimilishjálp í Skálarhlíð
Allar
nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Hermannsdóttir í síma 467-1147.
Umsóknarfrestur er til 1 feb.
Lesa meira
29.01.2008
Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur undanfarið átt í viðræðum við fulltrúa Búseta á Norðurlandi um byggingu búseturéttaríbúða í Fjallabyggð.
Um er að ræða fullbúnar íbúðir, í minni fjölbýlishúsum, með bílageymslu eða bílskýli. Íbúðirnar yrðu byggðar miðsvæðis í byggðakjörnum sveitarfélagsins, með góðu aðgengi, þar sem stutt er í verslun og þjónustu. Fyrst verður hafist handa við að byggja á Siglufirði, síðan á Ólafsfirði
Lesa meira
28.01.2008
Samkvæmt almanakinu er fyrsti sólardagur á Siglufirði á þessu ári í dag. Sólin hélt sig reyndar á bak við skýin og lét ekki sjá sig, en í fyrirtækjum í Siglufirði var engu að síður haldið upp á daginn með pönnukökum í kaffitímanum.
Sjá nánar á http://sksiglo.is
Lesa meira
25.01.2008
Sóknarbraut á Siglufirði - Við minnum á námskeiðið á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands um stofnun og rekstur fyrirtækja verður haldið á Siglufirði á vorönn 2008. Megin tilgangur námskeiðsins er að brúa bilið milli hugmyndar að fyrirtæki og markvissrar framkvæmdar.
Lesa meira
24.01.2008
Fimm umsóknir bárust um starf verkefnisstjóra vegna nýs framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð.
Umsækjendur eru:
Atli Gunnarsson, framhaldsskólakennari,
Kristján Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri,
Jón Eggert Bragason, framhaldsskólakennari,
Ragnar Bjarnason, framhaldsskólakennari
og Skarphéðinn Guðmundsson, grunn- og framhaldsskólakennari á Siglufirði.
Ráðið verður í stöðuna á næstu dögum.
Lesa meira
24.01.2008
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita alls 100 milljónum króna árið 2008 til eflingar atvinnuþróunar og nýsköpunar á þeim svæðum sem verða fyrir aflasamdrætti vegna skerðingar þorskaflaheimilda. Styrkhæf svæði eru sveitarfélög og eyjar þar sem hlutfall starfa í veiðum og vinnslu er 10% eða hærra. Áformað er að í fjárlögum ársins 2009 verði 100 milljónir sem verður ráðstafað á sama hátt. Auglýst er eftir umsóknum um stuðning við verkefni á viðkomandi svæðum.
Lesa meira
23.01.2008
Keppt var í skólahreysti Grunnskóla Ólafsfjarðar þriðjudaginn 22. janúar. Þessi keppni var að hluta til forkeppni fyrir þátttöku Grunnskóla Ólafsfjarðar í Skólahreysti á Skjá einum. Fjórum nemendum af hverju kyni í 6.-10. bekk var boðið að taka þátt eftir smá forkeppni í sem haldin var í íþróttatímum. Keppnin var skemmtileg og spennandi og töluverður fjöldi áhorfenda var mættur til að hvetja krakkana. Fyrir sjálfa keppnina á Skjá einum verða valdir 4 nemendur úr 9.-10. bekk en með þessari undankeppni er aðeins búið að velja tvo.
Lesa meira